Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.03.1979, Blaðsíða 38

Tímarit lögfræðinga - 01.03.1979, Blaðsíða 38
lagasetningar. Sú athugun, sem gerð hefur verið í sambandi við þessa samantekt, leiðir í ljós, að á Alþingi hefur ekki komið fram gagnrýni á það, að starfsstjórnir léggi almenn lagafrumvörp fyrir Alþingi. Sér- stakt athugunarefni, sem ekki hefur verið kannað, er hvort þing- mannafrumvörp séu tíðari á Alþingi á tímum starfsstj órna um þau málefni, sem venja er, að fjallað sé um í stjórnarfrumvörpum. Rann- sókn á þeim þætti verður að bíða betri tíma, en vera má, að svo hafi verið. Er raunar eðlilegt, að á þann veg sé farið um málefni, sem ef til vill hafa verið ástæðan fyrir því, að upp úr stjórnarsamstarfi slitn- aði. Um þingsályktanir gildir hið sama og almenn lög. Engar hömlur verða lagðar á starfsstjórnir varðandi framlagningu þingsályktunar- tillagna. Ástæða er til að fara nokkrum orðum um fjárlög og framlagningu fjárlagafrumvarpa á tímum starfsstjórna. Augljóst er af yfirlitinu hér að framan, að starfsstjórn getur ekki skotið sér undan að leggja fjárlagafrumvarp fyrir Alþingi. Að vísu verður þess ekki krafist, að þetta sé gert á fyrsta eða öðrum degi þingsins, en lengri dráttur en tvær til þrjár vikur virðist ekki þolaður af þinginu. Starfsstjórn verð- ur því að vinna að undirbúningi fjárlaga og miða störf sín við það, að fjárlagafrumvarp verði lagt fram strax í upphafi þings. Á tímum starfsstjórna hefur Alþingi hins vegar aldrei afgreitt fjárlög. Fjár- lagaafgreiðsla er í raun mikilvægasta viðfangsefni sérhverrar ríkis- stjórnar. Sú staðreynd, að fjárlög hafa ekki verið samþykkt undir starfsstj órn, endurspeglar það pólitíska upplausnarástand, sem ríkir á starfstíma hennar. Starfsstjórnir hafa síðan 1944 fjórum sinnum staðið að útgáfu bráðabirgðalaga, þ.e. þrisvar eftir þingrofið 27. mars 1956 fram til kosninganna 24. júní og einu sinni á tímanum 27. júní til 1. september 1978. Af þeim níu starfsstjórnum, sem hér er um fjallað, hafa aðeins þrjár setið, án þess að þing hafi setið eða komið saman á starfstíma þeirra, þe. ráðuneyti Ólafs Thors 1956, Jóhanns Hafstein 1971 og Geirs Hallgrímssonar 1978. Ekki er unnt að fóta sig á neinni reglu, sem þrengir umboð starfsstjórna til útgáfu bráðabirgðalaga miðað við þá venju, sem skapast hefur um mjög rúma túlkun á heimildinni til út- gáfu bráðabirgðalaga hér á landi. 1 þessu tilviki eins og flestum öðrum má setja fram dæmi um vafaatriði. Getur starfsstjórn t.d. ákveðið með bráðabirgðalögum að breyta lögum nr. 3 1967 um samkomudag Alþingis og fresta því fram yfir 10. október, að þing sé kallað saman? Sú spurning um ábyrgð ráðherra, sem kynni að rísa af þessu tilefni, á jafnt við, hvort sem um starfsstjórn eða skipaða ríkisstjórn er að 32
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.