Tímarit lögfræðinga - 01.08.1987, Síða 53
auk sérstaks úrlausnarvalds samkvæmt lögum um hlutaféiög og sam-
vinnufélög. Ætlunin er hér á eftir að fjalla nánar um þetta dómsvald,
að því leyti sem það snýr að réttarágreiningi í tengslum við skipti dán-
arbúa. Þótt viðfangsefninu sé hér sniðinn þessi þröngi stakkur, eiga
sömu reglur og sjónarmið að verulegu leyti við, þégar skilgreint er
dómsvald skiptaréttar í tengslum við önnur verkefni hans en skipti
á dánarbúum.
1 eftirfarandi umfjöllun er orðnotkun með þeim hætti, að ýmist er
talað um viðfangsefni skiptaráðanda eða skiptaréttar. Er ekki til þess
ætlast, að merkingarmunur felist í þessu mismunandi orðalagi.
2. UM RÉTTARHEIMILDIR
I skiptalögum er að finna reglur, einkum í 33.-35. gr., sem afmarka
lögsögu skiptaréttar gagnvart öðrum dómstólum til úrlausnar ágrein-
ingsmála við skipti dánarbúa. Um málsmeðferð í þeim málum, sem til
úrlausnar geta komið fyrir skiptarétti samkvæmt þessum ákvæðum,
er ekki að finna sérreglur í skiptalögum, heldur er í 38. gr. þeirra mælt
svo fyrir, að farið skuli „eftir réttarfarsreglum þeim, sem í gildi eru“.
Tilvísun þessi á við lög um meðferð einkamála í héraði nr. 85/1936, hér
eftir nefnd einkamálalög (eml.), og verður ekki skilin svo, að skiptalög
ætlist til, að farið sé eftir þeim reglum um þetta efni, sem í gildi hafa
verið við setningu þeirra, enda kveðið svo á í 223. gr. eml., að tiltekin
ákvæði þeirra laga taki til málsmeðferðar fyrir skiptarétti. I 96. gr.
skl. er að finna sérreglur um nokkur atriði varðandi málskot úrskurða
skiptaréttar, en að öðru leyti eru reglur um það efni í lögum nr. 75/1973.
Markús Sigurbjörnsson lauk embættisprófi frá
lagadeild Háskóla íslands vorið 1979 og stund-
aði síðan framhaldsnám i Danmörku frá 1. ág-
úst 1979 til 31. janúar 1981. Lagði hann stund
á einkamálaréttarfar við Det Retsvidenskabe-
lige Institut í Kaupmannahafnarháskóla. Hann
var fulltrúi bæjarfógetans í Keflavík frá árs-
byrjun til maíloka 1979. Að námi loknu varð
hann fulltrúi yfirborgarfógetans í Reykjavík frá
1. febrúar 1981 til 3. júní 1985, en þá var hann
skipaður borgarfógeti i Reykjavík. Markús hef-
ur undanfarin ár sinnt stundakennslu við laga-
deild.
47