Tímarit lögfræðinga - 01.08.1987, Síða 85
3. Jón Erlendsson, lögfræðingur, skipaður fulltrúi ríkissaksóknara frá 1.
apríl 1987.
4. Birni Ingvarssyni, yfirborgardómara í Reykjavik, veitt lausn frá 1. júní 1987.
5. Einari Ingimundarsyni, bæjarfógeta í Hafnarfirði, Garðakaupstað og á Sel-
tjarnarnesi og sýslumanni Kjósarsýslu, veitt lausn frá embætti frá 1. júní 1987.
6. Þorleifur Pálsson, deildarstjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, skip-
aður skrifstofustjóri kirkju- og fjármála í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu frá
1. maí 1987.
7. Birgir Már Pétursson, héraðsdómari við bæjarfógetaembættið í Hafnar-
firði, skipaður bæjarfógeti í Hafnarfirði, Garðakaupstað og á Seltjarnarnesi og
sýslumaður I Kjósarsýslu frá 1. júní 1987. Aðrir umsækjendur voru: Guðmundur
L. Jóhannesson, héraðsdómari í Hafnarfirði, Hjalti Zóphóníasson, skrifstofu-
stjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, Hjördís Björk Hákonardóttir, borgar-
dómari, Jón Thors, skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, Sigurð-
ur Helgason, bæjarfógeti á Seyðisfirði og sýslumaður Norður-Múlasýslu, Stefán
Hirst, skrifstofustjóri lögreglustjóraembættisins í Reykjavík, Stefán Skarphéð-
insson, sýslumaður Barðastrandarsýslu og Þorleifur Pálsson, deildarstjóri í
dóms- og kirkjumálaráðuneytinu.
8. Friðgeir Björnsson, borgardómari, skipaður yfirborgardómari í Reykjavík
frá 1. júní 1987. Aðrir umsækjendur voru: Garðar Gíslason, borgardómari og
Hrafn Bragason, borgardómari. Auk þess var einn umsækjandi, er óskaði nafn-
leyndar.
Eftirtaldir hafa verið skipaðir aðalfulltrúar:
Einar Sigurjónsson, Borgarnesi, Ágúst Jónsson, sakadómi Reykjavíkur og
Þorgeir Ingi Njálsson, Sauðárkróki. Hilmari Baldurssyni, aðalfulItrúa á Sauðár-
króki, var veitt lausn frá 1. október 1986.
Frétt frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu
NÝR DOKTOR í LÖGUM
Bjarni Sigurðsson, dósent við guðfræðideild
Háskóla íslands, varði á árinu 1985 doktors-
ritgerð um sögu og skipan íslensks kirkjuréttar
við háskólann í Köln [ Vestur-Þýskalandi. Rit-
gerðin er komin út hjá forlagi Peter Lang í
Frankfurt. Hún kallast Geschichte und Gegen-
wartsgestalt des islándischen Kirchenrechts.
Bjarni Sigurðsson er fæddur 1920, Árnesing-
ur að ætt. Hann varð stúdent á Akureyri 1942,
lauk lagaprófi 1949 og guðfræðiprófi 1954.
Hafði hann þá jafnframt háskólanámi verið
blaðamaður. Sama ár og hann lauk guðfræði-
prófi var hann vígður prestur og þjónaði síð-
an Mosfellsprestakalli í Kjósarsýslu allt til 1976.
Þá var hann skipaður lektor við guðfræðideild
í kennimannlegri guðfræði. Dósent var hann
79