Ægir - 01.03.1995, Blaðsíða 10
sakað um liið gagnstœöa, að hvetja til
þess að menn hendi fiski.
„Því hefur verið stórlega ofgert en
ég óttast hins vegar að þegar heimildir
eru orðnar eins litlar og þær eru nú
séum við komnir á þröskuld þess að
umgangast auðlindina með neikvæð-
um hætti.
Að henda fiski eða koma honum
framhjá vigt er óhæfa sem ekki á að
viðgangast."
Drögum ekki taum
fiskvinnslunnar
Nú deila LÍÚ og samtök sjómanna
hart um fiskverð og sölu á fiski. Eru
samtökin ekki farin að gœta hagsmuna
fiskvinnslunnar með auknum fjölda
frystitogara?
„Til margra ára var stór hluti míns
starfs að sitja í Verðlagsráði og taka
þátt í að ákveða verð á fiski. Þetta er
hætt sem betur fer því þetta var ná-
tengt opinberum afskiptum.
Ég tel samtökin ekki draga taum
fiskvinnslunnar. Sumir sakna þess að
ekki sé lágmarksverð á fiski, en mark-
aðurinn verður að fá að ráða þessu.
Það eru nú hörð átök milli sjómanna
og þeirra aðila sem eru með veiðar og
vinnslu á einni hendi og þau mál verð-
ur að leysa á vettvangi. Okkar menn
biðja nú ekki um lágmarksverð á fiski
og þegar við sátum með sjómönnum í
Verðlagsráði vorum við aldrei vændir
um að draga taum vinnslunnar."
Nútíminn vill aldrei viðurkenna að
það séu góðir tímar. Hvemig lítur fram-
tíðin út? Eru góðir tímar framundan?
„Við höfum áhyggjur af ákveðnum
stofnum. Við sækjum í auknum mæli í
úthafskarfann en það gera fleiri og það
hljóta að vera okkar hagsmunir að
koma þeim veiðum undir einhverja
stjórn. Grálúðan var okkur dýrmæt en
er nú vandfundin og lítið vitað um
hana. Þó umræðan snúist um
þorskinn er margt við að fást eins og
aflabrestur á loðnu sýnir best. Það var
ákveðiö áfall bæði fyrir vísindin og
okkur sem hvergi fundum loðnuna
frekar en vísindamenn."
Höfum áhyggjur af
úthafskarfanum
Við sjáum fréttir af stöðugt fleiri er-
lendum togumm sem íslendingar leigja
og gera út hér í nágrenninu. Er þetta
framtíðin?
„Þetta er verulegt áhyggjuefni og
mér finnst þetta ekki rétt. Það er verið
að sækja í úthafskarfann sem kominn
er að mörkum í sókninni og þegar
kvótinn verður ákveðinn milli þjóða
þá getur þetta framferði komið okkur í
koll. Nú eigum við Islendingar nógu
mörg skip til að sækja það sem okkur
ber og viö eigum að nýta okkar stóru
og góðu skip utan lögsögunnar til þess
að rýma fyrir öðrum innan hennar en
ekki að sækja skip til annarra landa þar
sem menn hafa gefist upp á útgerð eft-
ir að hafa veitt upp fiskistofna. Sókn i
takmarkaöa auðlind kallar á reglur sem
allir fara eftir og allir skuiu vera jafn-
settir. Að ætla að fara að stórauka
sóknina með aðkeyptum og aðfluttum
skipum er að fara offari enn einu
sinni." □
Útgerðarmenn Sjómenn Aðstandendur sjómanna
Nýtið ykkur þjónustu strandarstöðvanna
Hringið og pantið samtal um eftirtaldar stöðvar:
Reykjavík Radíó (Gufunes Sími: 91-11030/ 16030 skip
Sími: 91-672062 bifreiðar
Isafjörður Radíó Sími: 94-3065
SiglufjörSur Radíó Sími: 96-71108
Nes Radíó Sími: 97-71200
HornafjörSur Radíó Sími: 97-81212
Vestmannaeyjar Radíó Sími: 98-11021
Auk símtalaafgreiöslu hlusta strandarstöðvarnar á kall- og neyðartíðnum skipa og bifreiða, rás 16, 2182 KHz og 2790 KHz, allan sólarhringinn, alla daga ársins og ann- ast fjarskipti við leit og björgun.
SJÓMENN! MUNIÐ TILKYNNINGASKYLDUNA
10 ÆGIR MARS 1995