Ægir - 01.03.1995, Qupperneq 13
SJÁVARSÍÐAN
FEBRÚAR 18111 MAÐUR MÁNAÐARINS
landi er mjög sterkur eða um 100
þúsund tonn og ætti að vera
óhætt að veiða 3 þúsund tonn ár-
lega. Austfirskir útvegsmenn sýna
málinu áhuga.
M Níu frystihús hafa sótt um
Ifta úreldingarstyrk úr Þróunar-
sjóði sjávarútvegsins en sam-
kvæmt lögum um sjóðinn á hann
að veita styrki til úreldingar fisk-
vinnsluhúsa. Stærst húsanna sem
sótt hafa um úreldingu er frysti-
hús Hólaness á Skagaströnd. Þró-
unarsjóður vinnur að því aö út-
færa reglur um hvernig staðið
skuli að úreldingu húsanna.
Útgerðarfélagið Akkur á Fá-
HH skrúðsfirði, sem nýlega
seldi rækjutogarann Klöru Sveins-
dóttur til ísafjarðar, stendur í
samningaviðræðum um kaup á
56 metra löngum úthafsveiðitog-
ara frá Nýfundnalandi. Frystigeta
skipsins er 60 tonn á sólarhring.
Rækjukvóti Klöru Sveins var seld-
ur með henni til ísafjaröar en gert
er ráð fyrir að gera umræddan
togara út á úthafskarfaveiðar og
rækjuveiðar í úthafinu.
PPI Tjaldanes ÍS staðiö að ólög-
■i legri löndun afla framhjá
vigt í Hafnarfirði. Þetta er í fyrsta
skipti sem skip er kært fyrir slíkt
svindl. Skipstjórinn segist í fjöl-
miðla hafa verið að bjarga sér.
M Grænlenska loðnuskipinu
Ui Ammassat bannað að
stunda loðnuveiðar í íslenskri lög-
sögu og að flytja hrat frá skipum
sem flokka loðnu úti á sjó. Skip-
stjórar mótmæla þessari ákvörðun
sem þeir telja rangláta.
PPJ Togaraskýrsla LÍÚ sýnir að
■■■ aflaverðmæti frystitogara
jókst um 7,7% á síðasta ári á með-
an aflaverðmæti ísfisktogara jókst
um 1,8%. Gullver NS var með
mest aflaverðmæti ísfisktogara,
um 272 milljónir, en hæstur
frystitogara var Baldvin Þorsteins-
son EA með tæpar 578 milljónir.
Maður mánaðarins er Lárus GrÍmsson skipstjóri á Júpíter ÞH. Lárus og hans
menn flokkuðu loðnu til frystingar úti á sjó í miklum mæli og fóru fremstir í
flokki þeirra sem fitjuðu upp á nýjungum í því efni. Júpítersmenn notuðu ýmsar
aðferðir til þess að losna við úrgangsloðnu, sendu m.a. stóran pramma með
dráttarbát vestur til Bolungarvíkur.
„Þetta gekk að mörgu leyti vel. Framkvæmdin, þ.e. flokkunin sjálf og allt það,
gekk samkvæmt áætlun en að þessu sinni náðum við ekki næstum því eins miklu
magni og við ætluðum. Mikil áta í loðnunni var
rneira vandamál en venjulega gerist. En það gengur
betur næst," sagði Lárus í samtali við Ægi.
Lárus Grímsson er fæddur 3. mars 1951 í
Reykjavík. Foreldrar hans eru Grímur Jónsson
læknir í Hafnarfirði og Gerda Jónsson kona hans.
Eiginkona Lárusar er Jóhanna Daðey Kristmunds-
dóttir úr Dýrafirði og dóttir þeirra er Þórdís Harpa,
f. 1973.
Lárus lauk prófi úr Stýrimannaskólanum 1975 og
hefur verið skipstjóri á nótaskipum í 20 ár, m.a. á
Hilmi II, Hafrúnu og Ljósfara en tók við Júpíter 1988. Júpíter á 4% loðnukvótans
sem myndi skila 40 þúsund tonnum miðað við milljón tonna heildarveiði. Ljóst
er að skipið nær ekki úthlutuðum kvóta sínum á þessari vertíð en viku af mars
hafði Júpíter veitt rúm 10 þúsund tonn frá áramótum.
Júpíter ÞH 61 er upphaflega síðutogari smíðaður í Bremerhaven í Þýskalandi
árið 1957 og var gerður út sem slíkur frá Reykjavík af Tryggva Ófeigssyni. 1979
var skipt um brú, byggt yfir þilfar og skipt um aðalvél en annars er hann lítt
breyttur frá upphafi. Burðargetan er rétt 1300 tonn.
„Hann er orðinn roskinn en það er mikið eftir í honum enn. Hann telst til
okkar elstu en jafnframt bestu skipa."
ORÐ í HITA LEIKSINS
„Þetta hefur verið mér mjög góður tími og þessi 50 ár sem ég hef verið á sjónum
hafa liöið hratt." Arinbjörn Sigurðsson, landsfrægur aflaskipstjóri, tekur pok-
ann sinn og lýsir ferlinum í samtali við fréttabréf Granda.
„Einhvern tíma hefði það þótt guðlast að nefna fullyrðingar innan veggja LÍÚ
um að fiski væri hent í sjóinn í stórum stíl, en nú framleiða menn þar á bæ áróð-
ursplaköt til að stemma stigu við þessum glæp." Hörður Kristjánsson í forystu-
grein Vestfirska fréttablaösins 8. febrúar.
„Það er hörmungaraðbúnaður hjá sjómönnunum sem eru þarna. Ef slys verða
eða óhöpp er þetta ægilegt iíf ef engin er aöstoðin." ÞÓrður B. Sigurðsson, yfir-
vélstjóri á Óðni, talar við VSFÍ-fréttir um lífið í Smugunni.
„Sjómannaforystan er hér aö reiða til höggs gagnvart fiskvinnslufólki um land
allt sem á eftir að lifa í eilífri óvissu um það hvort það getur fengið vinnu eða
ekki." KristjáN Ragnarsson, formaöur LÍÚ, um aðgerðir samtaka sjómanna og
Samtaka fiskvinnslustöðva án útgeröa í fiskverðsmálum.
„Þetta feilspor okkar síðastliðin tíu ár í stjórnun fiskveiða er búið að kosta þjóð-
ina mörg hundruð milljarða í glötuðum verðmætum." Sveinbjörn JÓNSSON, á
Suðureyri, um kvótakerfið í Vestfirska fréttablaðinu 15. febrúar.
ÆGIR MARS 1995 13