Ægir - 01.03.1995, Qupperneq 21
ureyri og var fyrstur skuttogara með
búnað til þess að frysta fisk um borð.
Síðan hefur togaraflotinn í vaxandi
mæli sótt í fullvinnslu. Dæmigerður
togari vinnur aflann um borð og er
fisknum skipað upp tilbúnum á er-
lendan markað. Útgerð frystiskipa er
sá þáttur sem skilar mestum hagnaði
nú um stundir og undanfarin ár hafa
útgerðarmenn togara sótt í slíkar veið-
ar í vaxandi mæli og ísfisktogurum
fækkað. Árið 1993 voru 69 ísfisktogar-
ar skráðir með afla en 64 vinnsluskip
og af þeim eru 39 skip talin vera frysti-
togarar en mismunurinn er skip og
bátar sem stunda ekki eingöngu veiðar
þar sem aflinn er frystur um borö. Alls
eru þetta 133 skip en í Sjómannaalm-
anaki 1995 eru skráðir 110 eiginlegir
skuttogarar. Árið 1994 nam aflaverð-
mæti ísfisktogara 10,6 milljörðum og
hafði aukist milli ára um 1,8% en afla-
verðmæti frystitogara nam 13,9 millj-
örðum og jókst um 7,7% milli ára.
Kvótakerfið og niðurskurður veiði-
heimilda hefur leitt til vaxandi sóknar
í úthafsveiði utan íslenskrar lögsögu á
Reykjaneshrygg og í Barentshafi og
með því hafa margir togarar, sérstak-
lega vinnsluskip, mætt vaxandi sam-
drætti í leyfðum afla.
í upphafi árs 1995 er vinnsluskipið
Guðbjörg ÍS nýjasta og glæsilegasta
fiskiskip íslendinga og á það sameigin-
legt með ýmsum fyrirrennurum sín-
um að vera talin fullkomnasta fiski-
skip í heiminum. □
Heimildir:
Heimir Þorleifsson: Saga íslenskrar tog-
araútgerðar fram til 1917.
Þorleifur Óskarsson: íslensk togaraút-
gerð 1945-1970.
Ásgeir Jakobsson: Kastað í Flóanum.
Bjarni Guömarsson: Togaraútgerð í
Reykjavík 1920-1931. Grein í
Landshagir, þættir úr íslenskri at-
vinnusögu, gefnir út í tilefni 100
ára afmælis Landsbanka Islands.
Öldin okkar 1971-1990.
Ægir, afmælisrit 1959.
Hafrannsóknastofnun, fjölrit nr. 37:
Nytjastofnar sjávar 1993/94.
Útvegur 1993. Fiskifélag íslands.
Örvar HU kom til heimahafnar á Skagaströnd í apríl 1982. Hann var smíðaður í
Slippstöðinni á Akureyri, 499 brl. að stærð. Örvar var fyrstur íslenskra togara
með fullvinnslulínu um borð og var aflinn flakaður og frystur úti á sjó.
SWAN NET LTD
kynnir
HEKLU flottrollin
Léttara í drætti.
Auðveld
sjósetning.
Trollið fer
klárt í sjó.
Heklan er úr
snúnu nyloni.
Skverar sig mjög vel
eða 7,6% af ummáli
belgsins.
Léttara að taka það og
láta það fara.
Trollið er úr vatnsvörðu efni
sem gerir það að verkum að
þegar það er komið inná
tromluna er það nánast þurrt,
Eftirtalin
skip hafa
valið Heklu:
Margrét EA
Breki VE
Gnúpur GK
Runólfur SH
Klakkur SH
Akureyrin EA
Kynntu þér flottrollin frá SWAN NET LTD hjá:
Ellingsen hf.
Reykjavík
Sími5628855
Fax 5621877
Netagerðin Ingólfur
Vestmannaeyjum
Sími 4811235
Fax 4813063
ÆGIR MARS1995 21