Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.03.1995, Qupperneq 25

Ægir - 01.03.1995, Qupperneq 25
Karfalingur er ný tegund á íslandsmiðum. Veiddist á grálúðuslóð vestan Víkuráls á 695 m dýpi, 18 cm langur. Karfalingur mun vera útbreiddasta tegund karfaættar þótt hún hafi ekki fundist fyrr hér við land. m botndýpi, 494-677 m togdýpi, 26 cm, flotvarpa. - Ágúst, Skerjadjúp, 641-824 m, 36 cm, flotvarpa. - Október, Skerjadjúp, 640-1098 m, 35 cm, flotvarpa. - Desember, „Sneiðin", 549-769 m, 35 cm, hængur með velþroskuð svil. Dökksilfri fannst hér við land fyrst árið 1992. Árið 1993 veiddust tveir (annar greindur sem svartsilfri) en nú gubbast þeir yfir ekki færri en sjö árið 1994. Ennisfiskur, Platyberyx opalescens - Mars, Húnaflóadjúp, 366-421 m, 20 cm, rækjuvarpa. - Október, grálúðuslóð vestan Víkur- áls, 17 cm, botnvarpa. Ennisfiskur, sem veiddist fyrst hér við land árið 1978, hefur fundist nær árlega síðan, einn eða fleiri hvert ár á svæðinu frá SV-miðum vestur og norð- ur á móts við Kolbeinsey. Kambhaus, Poromitra crassiceps - Júlí, Grænlandshaf, 700-1100 m, 3 stk. meðallengd 14 cm, flotvarpa. Kistufiskur, Scopelogadus beanii - Júlí, Grænlandshaf, 700-1100 m, 47 stk. meðallengd 10,6 cm, flotvarpa. Durgur, Allocyttns vemtcosus - Maí, grálúðuslóð vestan Víkuráls, 1150 m, 34 cm, 1,0 kg, botnvarpa. Ný tegund á íslandsmiðum! Þessi tegund hefur ekki fundist svona norð- arlega áður. Hún þekkist í Atlantshafi undan Afríku (Máritanía, Guineuflói, Walvis Ridge) og einnig í V-Atlantshafi og víðar. Fiskar sömu ættar (Oreosom- atidae) sem fundist hafa hérna em blá- kjammi, Pseudocyttus maculatus, sem fannst árið 1993 og göltur, Neocyttus helgae, sem fannst 1989 og annar 1992. Brynstirtla, Trachipterus tracliipterus í ágúst, september og nóvember varð vart við brynstirtlu víða við land, einkum frá SV-landi norður með V- landi til NV-, N- og NA-lands. Var hún víða í allmiklu magni og hefur ekki orðið vart svo mikillar brynstirtlu- gengdar hér við land síðan 1941. Svelgur, Cltiasmodon bolangeri - Júlí, Grænlandshaf, 700-1100 m, 8 stk., meðallengd 15,5 cm, flotvarpa. Gleypir, Cltiasinodon niger - Júlí, Grænlandshaf, 700-1100 m, 2 stk., meðallengd 16 cm, flotvarpa. Hveljumjósi, Melanostigma atlanticum - Júlí, Grænlandshaf, 700-1100 m, 9 cm, flotvarpa. Drumbur, Thalassobathia petagica - Apríl, SV Reykjaness, 1464-1647 m botndýpi, 494-677 m togdýpi, 28 cm, flotvarpa. - Maí, Hornafjarðardjúp, 183 m, 33 cm, humarvarpa. - Ágúst, grálúðuslóð vestan Víkuráls, 641-824 m, 31 cm. Gráröndungur, Chelon labrosus - Júlí, Akraós á Mýrum, 45 cm, sil- unganet. - Júlí, Hornafjarðarfljót, 48 cm, sil- unganet. Svartgóma, Helicolenus dactylopterus - Apríl, SV Reykjaness, 439-458 m, 4 stk., þar af þrjú mæld 27 cm, 350 g, 32 cm, 550 g og 34 cm, 600 g, botn- varpa. - Apríl, Litli banki (utanvert Skerja- djúp), 622-659 m, 28 cm, 300g, botnvarpa. - Maí, út af Breiðamerkurdjúpi, 375 m, 38 cm, 850 g, botnvarpa. - September, út af Hornafjarðardjúpi, 311 m, 4 stk„ 33, 35, 37 og 37 cm, botnvarpa. Karfalingur, Setarches guentheri - Apríl, grálúðuslóð vestan Víkuráls, 695 m, 18 cm, botnvarpa. Ný tegund á íslandsmiðum! Þessi tegund, sem er af karfaætt, mun vera útbreiddasta tegund þeirrar ættar og finnst í öllum heimshöfum þótt ekki hafi hún fundist hér við land fyrr en nú. Urrari, Eutrigla guntardtts - Ágúst, Finnafjörður (Bakkaflói), 9 m dýpi, 38 cm, dragnót. Urrari hefur ekki fundist á þessum slóðum áður svo vitað sé. Tómasarhnýtill, Cottunculus thom- sonii - Júlí, grálúðuslóð vestan Víkuráls, 24 cm, botnvarpa. - Desember, Skerjadjúp, 641 m, 33 cm, botnvarpa. Stóri sogfiskur, Liparis liparis - Apríl, við Málmey á Skagafirði, 33 m, 5 cm, kúfiskplógur. Djúphafssogfiskur, Paraliparis copei - Ágúst, grálúðuslóð vestan Víkuráls, 10 cm, botnvarpa. Tveir fiskar þessarar tegundar veidd- ust árið 1992 á sömu slóðum og þessi og er það í fyrsta skipti sem þeirra varð vart með vissu á íslandsmiðum. Litli flóki, Phrynorhombus norvegicus - Apríl, út af Grundarfirði, 40-49 m, 10 cm, kúfiskplógur. Lúsífer, Himantotophus groenlandicus - Apríl, SV af Reykjanesi, 695-714 m, 36 cm, 2,4 kg, botnvarpa. - Apríl, SV af Reykjanesi, 494-677 m, 2 stk., 26 og 30 cm, flotvarpa. - Maí/júní, grálúðuslóð vestan Víkur- áls, 952-1098 m, 35 cm að sporði, botnvarpa. - Júlí, Kolluáll, 21 cm. - Júlí, grálúðuslóð vestan Víkuráls, 787-1025 m, 18 cm, botnvarpa. - Nóvember, SV af Vestmannaeyjum, 641-915 m, 21 cm, flotvarpa. ÆGIR MARS 1995 25

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.