Ægir

Årgang

Ægir - 01.03.1995, Side 35

Ægir - 01.03.1995, Side 35
HVAÐ ER RETT SKIPASKRA? Listinn sem hér er birtur er ekki tæmandi, sérstaklega ekki þegar tíunduð eru véla- skipti í smærri bátum. Erfiðlega gekk að útvega lista sem tæki til allra breytinga á flot- anum á árinu og er greinilega pottur brotinn í upplýsingasöfnun þeirra eins og opin- berir aðilar standa að henni og nauðsynlegt að samræming og endurnýjun til sam- ræmis við nútímakröfur fari fram. Siglingamálastofnun ríkisins lætur vinna skipaskrána hjá Skýrsluvélum ríkisins og þar er hún geymd í um 10 ára gömlu tölvuumhverfi sem er þungt í vöfum og ófull- komið á ýmsan hátt. Fiskifélag íslands heldur einnig skipaskrá og það gerir Fiskistofa líka og einhver munur er milli þessara skráa þótt þær byggi allar í raun á sama grunni. Listinn yfir lengingar og vélaskipti í þilfarsskipum er fenginn frá Fiskifélagi íslands og sömuleiðis listinn um lengingar á opnum bátum. Skrá Fiskifélags er tæmandi um þau skip sem hún nær til. 30 ára reynsla! C Vélaviðgerðir v Rennismíði • Málmsprautun og rafsuða á öxla Plötusmíði VÉLAVERKSTÆÐI • Skrúfuviðgerðir og fl. JÚHANNS OLAFS H/F Reykjavíkurvegur 70 • Hafnarfirði • Sími: 555 2811 • Bréfsími: 565 0140 Listann yfir öll önnur véla- skipti útbjó Pétur Svavarsson, starfsmaður Vélorku hf., fyrir Ægi. Listinn er byggður á skipa- skrá Siglingamálastofnunar og búinn til með því að færa upp- lýsingar úr henni yfir í Access- gagnagrunn. Vélorka seldi vélar í alls 24 báta á síðasta ári. Þeir eru þó ekki allir á listanum því nokkrir þeirra voru ekki búnir að tilkynna breytingar til Siglinga- málastofnunar þegar listinn var tekinn saman í byrjun mars. Reikna má með að svo sé einnig um aðra umboðsaðila, þ.e. að þeir hafi selt vélar í fleiri báta en listinn gefur til kynna. Meðan núverandi horf er á söfnun upp- lýsinga í skipaskrá er ekki hægt að birta lista sem er fullkominn. Það er ætlun Ægis að birta yfirlit yfir breytingar á skipum árlega og við þorum hiklaust að lofa ít- arlegri lista að ári. Skipaskrá þyrfti að vera að- gengilegri og bjóða upp á fjöl- breyttari möguleika en nú er. Því er hvatt til þess að þeir aðilar sem koma við þessa sögu leggist á eina ár til þess aö bæta ástand- ið. íhugandi er hvort ekki eigi að halda eina mjög ítarlega skipa- skrá í landinu til aö koma í veg fyrir tvíverknað. □ 1985-1995 SKIPAVWGERDIR Öll almenn járnsmídri ryðfríU stál 09 ál Gerum verðtilboð Vanir menn vönduð vinna 5TBL-0RKB Skútahraun 11 220 Hafnarfjörður Sími 565-0399 Fax 565-0399 Bílasími 985-27687 03 O) 2 ÆGIR MARS 1995 35

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.