Ægir - 01.03.1995, Page 46
Jónas Haraldsson, skrifstofusjóri L.I.U.
Viljum ekkert samstarf við
hryðj uverkasamtök
í síðasta tölublaði Ægis birtist viðtal
við Árna Finnsson, starfsmann Green-
peace-samtakanna, sem við íslend-
ingar þekkjum af biturri reynslu.
Þótt maður sé ýmsu vanur þegar
þessi samtök eiga í hlut, og ekki sízt
Árni Finnsson, þá tekst þessum
aðilum enn og aftur að koma manni á
óvart með furðulegum og oft barna-
legum málflutningi. Er ekki að
ástæðulausu að mörgum finnst
Greenpeace vera veruleikafirrt um-
hverfissamtök.
Upplýsingar og ofbeldi
I viðtalinu fullyrðir Árni Finnsson
að baráttuaðferð Greenpeace sé að
koma upplýsingum til almennings.
Jafnframt sé meginreglan að beita ekki
ofbeldi. Er það nýtt fyrir mönnum að
Greenpeace viðurkenni að samtökin
beiti ofbeldi, þótt það sé ekki algild
regla. Er ekki að ástæðulausu að Davíð
Oddsson forsætisráðherra kallaði
Greenpeace hryðjuverkasamtök sem
segir heilmikið um hug íslendinga til
Greenpeace og hvernig Greenpeace
hefur komið ár sinni fyrir borð gagn-
vart okkur íslendingum.
Hvað áðurnefnda upplýsingamiðlun
til almennings snertir þá er Green-
peace þekkt fyrir að grípa tii rangtúlk-
ana í áróðursskyni fyrir málstað sinn.
Má nefna í því samhengi ab Alþjóða-
hafrannsóknarráðiö neitaði Green-
peace um áheyrnaraðild að ráðinu á
þeim forsendum að Greenpeace væri
ekki hæft til að fara með vísindaleg
gögn, sem ætti ekki ab koma mönnum
á óvart sem þekkja til áróðurs Green-
peace þar sem tilgangurinn helgar
meðalið.
Það sem vekur sérstaka furbu í við-
talinu við Árna Finnsson eru eftirfar-
andi ummæli, sem rétt er að taka upp
orðrétt.
Hvalveiðar íslendinga
„Það er margt sameiginlegt í afstöbu
íslenskra stjórnvalda og Greenpeace í
umhverfismálum sem vib ættum að
geta unnið saman að án þess ab láta
ágreining um einstök atriði spilla því.
Jónas Haraldsson.
Auövitað hefur hvalveiðimálið vald-
ib erfiðleikum í samskiptum okkar við
þjóðir eins og Islendinga. Við gerðum
þau mistök á sínum tíma að berjast
eingöngu gegn hvalveiðum íslendinga
án þess ab leggja samtímis áherslu á
þau baráttumál okkar sem íslendingar
studdu. Við hefðum víba geta unnið
betur saman en hvalamálið varð á
milli. Nú eru engar hvalveiðar í gangi
svo við ættum ekki aö þurfa að deila
um það. Hrefnuveiðar eru ekki stærsta
hagsmunamál íslendinga.
Hitt er alveg ljóst ab hrefnuveiðarn-
ar og afstaða Greenpeace í því máli
verður ekki notað sem skiptimynt til
þess að semja einhvers konar frið við
íslendinga. Vib mununt ekki hvika frá
okkar stefnu enda varla naubsynlegt
að kaupa íslendinga til þess að gera
þeð sem þeir þurfa að gera."
Hroki og einfeldningsháttur
Þessi ummæli bera meb sér hroka og
einfeldningshátt. Heldur Greenpeace
virkilega að íslendingar hefbu viljað
vinna í samstarfi með Greenpeace
varðandi t.d. mengunarmál á sama
tíma og Greenpeace var að berjast með
ofbeldi gegn hvalveiðum okkar íslend-
inga. Um leið er því lýst yfir aö Green-
peace muni ekki hvika frá baráttu
sinni gegn hvalveiðum, enda á ekki að
þurfa að kaupa íslendinga til ab gera
það sem þeir þurfa að gera. Sem er
hvað, ég spyr? Enn á ný á að reyna að
fá íslendinga til samstarfs við Green-
peace undir forystu þeirra að sjálf-
sögðu. Nú eru þab fiskverndunarmálin
sem Greenpeace hefur tekið upp á
arma sína og ætlar að kenna fiskveiði-
þjóðum heims allt um þau mál.
Slettireka öllum til ama
Þaö sem Árni Finnsson og Green-
peace-samtökin vilja alls ekki viður-
kenna er sú staðreynd ab hvorki
Islendingar né aðrar fiskveiðiþjóðir
hafa neinn áhuga á því að eiga nokk-
urt samstarf við þessi samtök, enda
engin þörf á því. Það er nákvæmlega
ekkert sem Greenpeace hefur nýtt
fram að færa nema að reyna að troða
sér inn í umræðuna í misskildu hlut-
verki frelsarans. íslendingar vilja leysa
sín vandamál sjálfir eða í samstarfi við
siðaðar þjóðir, án slettireku eins og
fyrirbærib Greenpeace er öllum til ama
og leiöinda ab venju. Eitt er víst að
hagsmunaaðilar í íslenzkum sjávar-
útvegi munu eftir sem áður berjast
gegn Greenpeace bæbi hérlendis sem
erlendis. □
46 ÆGIR MARS 1995