Ægir - 01.12.1995, Blaðsíða 16
SJAVARSIÐAN
VIÐ NÁNARI ATHUGUN
Einn sjómaður slasast á dag
Á árunum 1973 til 1993 komu til meðferðar á slysadeild Borgarspítalans 7.713
slasaðir í sjóslysum eða að meðaltali 367 slasaðir á ári. Þetta þýðir að á hverjum degi
á þessum tímabili slasaðist einn sjómaður nógu illa til þess að hann væri fluttur á
slysadeild en á Borgarspítalanum hefur slösuðum og veikum sjómönnum um árabil
verið veitt viðamikil þjónusta. Þangaö eru fluttir til meðferðar langflestir alvarlega
slasaðir sjómenn af öliu landinu og nánast allir sem slasast á nálægum miöum.
Þeir 7.713 sjómenn sem komu á slysadeild á umræddu 20 ára tímabili skiptust
þannig að 3.638 voru frá Reykjavík en 4.030 utan Reykjavíkur. Karlar voru í miklum
meirihluta eða 97,6%. 3,8% þeirra sem komu frá Reykjavík þurfti að leggja inn en
9,5% þeirra sem komu utan af landi og má það teljast nokkuð eðlilegt þar sem menn
eru varla fluttir um Iangan veg undir læknishendur án þess að meiðslin séu alvarleg.
Síðustu ár virðist heildarinnlögnum heldur hafa fækkað ef tekin eru saman
þriggja ára tímabil. Á árunum 1991 til 1993 voru lagðir inn 63 sjómenn vegna af-
leiðinga slysa meðan 99 voru lagðir inn á næstu þremur árum á undan. Þeir sem
slasast á síðari hluta tímabilsins sem rannsóknin nær til eru eldri en áður. Á þriggja
ára tímabili 1982 til 1984 voru slysin langalgengust í aldurshópnum 20 til 24 ára
en tíu árum síðar eru þau algengust í hópnum 25 til 29 ára. Á sama tíma hefur orð-
ið mikil fækkun slysa í aldurshópnum 15 til 19 ára. Þessa þróun má trúlega rekja til
betri menntunar, forvarnastarfs, nýrra starfshátta og breyttrar útgerðar.
Slysatíðni þessara 20 ára er nokkuð misjöfn. Skýrt sést að slysum fjölgar mjög á ár-
unum 1985 til 1988. Síðan hefur dregið vemlega úr slysum í Reykjavík en nrinna úti
á landi. Hver er nákvæm skýring þessa er ekki gott að segja. Á árunum 1985 til 1988
fjölgaði ársverkum við fiskveiðar um ca. 1000. Lítinn hluta þess má rekja til auk-
innar vinnslu um borð en stærstan hluta til mikillar fjölgunar smábáta sem varð á
þessum árum.
Þessar niðurstöður em úr rannsókn sem Brynjólfur Mogensen læknir á slysadeild
Borgarspítalans hefur unnið og kynnti nýlega á ráðstefnu í Esbjerg. Brynjólfur legg-
ur til að lögð verði meiri áhersla á forvarnastarf en áður og slysa- og sjúkdómaskrán-
ing verði stórbætt frá því sem nú er. Koma þurfi á stórbættri fjarskiptalæknisþjón-
ustu. Brynjólfur telur brýnt og leggur til að komið verði á fót heilbrigðisstofnun sjó-
farenda að fyrirmynd flestra landa í kringum okkur og yrði stofnunin staðsett á
Borgarspítalanum og bæri ábyrgð á eftirtöldum þáttum: a) skipulagninu á gmnn-
og símenntun sjófarenda, b) samræmdri slysa- og sjúkdómaskráningu, c) fjar-
skiptalæknisþjónustu sjófarenda, d) umsjón meö lyfjakistum og e) öflugri upplýs-
ingamiðlun til allra forvarnaraðila þar sem upplýsingar úr slysa- og sjúkdómaskrán-
ingu eru notaðar.
FJÖLDI Árlegur fjöldi
ANNÁLL
■M Tveir rækjutogarar, Erik BA
H og Kan BA, bætast í flota
Bíldddælinga. Togararnir eru
keyptir af Royal Greenland og
rækjuverksmiðjurnar á Bíldudal,
Blönduósi og Sauðárkróki samein-
ast um kaupin á þeim. Samtals
geta togararnir fryst 80 tonn á sól-
arhring og veröur þeim haldið til
veiöa á Flæmingjagrunni.
■■■ Hólmadrangur hf. á Hólma-
mÆ vík hefur tekið frystiskipið
Andey SF frá Hornafirði á leigu og
hyggst halda skipinu til úthafs-
rækjuveiða fyrst um sinn.
■■■ ísfélag Vestmannaeyja kaup-
ir 15 ára gamalt nóta- og
togveiðiskip frá Hjaltlandi fyrir
rúmar 300 milljónir. Burðargeta
skipsins er um 1000 tonn en það
er búið sex kælitönkum. Skipið
verður afhent í apríl í vor.
■■■ Fiskistofa úrskurðar að þó
Kfl stækkun skipa við breyting-
ar sé meira en 20% þurfi ekki að
úrelda rúmmetra á móti. Fiskistofa
úrskurðaði að Farsæll GK þyrfti
ekki að leggja inn úreldingu þó
fyrirhuguð stækkun næmi 50%.
■M Engey RE kemur til landsins
Kfl eftir gagngerar breytingar í
Póllandi.
Sólblóm hf. heitir nýstofnað
fyrirtæki sem mun ætla að
stunda smokkfiskveiðar við Falk-
landseyjar í samvinnu við heima-
menn. Mjög auðug smokkfiskmið
eru í nágrenni eyjanna og gott
verð fæst fyrir aflann.
■■■ Útgerðarfyrirtækið Vísir í
Grindavík kaupir Frey ÁR frá
Þorlákshöfn. Hluti af kvóta Freys
fylgir með í kaupunum. Fyrir á
Vísir fjóra báta.
PPI Fiskimjöl og lýsi hf. í
■U Grindavík kaupir notað
nóta- og flottrollsskip frá Skot-
landi. Skipið er norsk smíði frá
1978, getur borið tæp 1000 tonn,
þar af 760 tonn í sjókælitönkum.
Kaupverðið er 350 milljónir.
16 ÆGIR