Ægir - 01.12.1995, Page 20
Elding endurfæðist
„Þessi bátur er sá albesti sem ég hef
veriö á. Þetta er algjör sjóborg," sagöi
Þorgeir Jóhannsson eigandi Eldingar í
samtali viö Ægi.
Suöur í Kópavogshöfn liggur bóga-
breitt skip, rauömálaö, með nafninu
Elding málað á brúarskyggniö. Þessi
sjón vekur athygli og hlýjar endur-
minningar hjá gömlum síldarsjó-
mönnum sem leib eiga um.
Eldingin var um árabil þekktasta
björgunar- og dráttarskip Islend-
inga. Síbustu síldarárin, þegar flot-
inn var á veiðum fyrir austan land,
var Elding aldrei langt undan þeg-
ar þurfti aö skera úr skrúfu eöa
bjarga mönnum úr vandræðum.
Skipstjóri og aðalkafari var Haf-
steinn Jóhannsson sem margt
mætti um skrifa þó ekki veröi þaö
gert hér.
Eldingin er sérstætt skip sem á langan og skrautlegan feril sem björgunar-
sklp, dráttarbátur og rækjubátur.
Eldingin hefur átt langan og
skrautlegan feril í ýmsum hlutverk-
um en nú er hún komin aftur heim
til föðurhúsanna í tvennum skiln-
ingi. Annars vegar vegna þess að
hún var smíðuð í Kópavogi en hins-
vegar vegna þess að núverandi eig-
andi hennar og sá sem er að gera
hana upp og endurbyggja er Þorgeir
Jóhannsson bróðir Hafsteins. Þorgeir
starfaði sem kafari um árabil á Akra-
nesi og víðar og var í áhöfn Eldingar
á blómatíma hennar. Hann hefur
verið búsettur í Noregi um árabil og
starfað á olíuborpöllum þar.
Þorgeir Jóhannsson eigandi Eldingarinnar vinnur hörðum höndum við
endurbyggingu hennar í Kópavogshöfn.
Dráttarbátur og skemmtibátur
Hann ætlar að gera Eldinguna að
alhliða dráttarbát og skemmtibát
sem henti jafnvel til þess að vinna
að björgunarstörfum og sigla með
ferðamenn um sundin blá í hvala-
skoðun og grillveislum. Hann vinn-
ur samkvæmt þeirri áætlun að skipið
verði klárt í apríl í vor og þá telur
20 ÆGIR