Ægir - 01.12.1995, Page 21
hann að fjögurra manna áhöfn ættu að
duga til að sinna þeim verkum sem fyrir
liggja-
„Þessi áætlun verður að standa því ég
er þegar búinn að fá fimm til sex bókanir
í ýmis verkefni," sagði Þorgeir í samtali
við Ægi. Skipt verður um brú á Elding-
unni og hún flikkuð upp á ýmsan hátt og
mun minna meira á skemmtisnekkju en
dráttarbát að endurbyggingu lokinni.
Elding var smíðuð 1965 til 1967 í
Kópavogi eftir teikningum að kanadísk-
um tundurskeytabát. Hún er 27,42 metrar
á lengd, 6,86 metrar á breidd og er skráð
105 brl. með tvær Caterpillar-vélar en
hvor þeirra er 527 hö. Hún er nú skráð
sem dráttarbátur.
Eldingin átti stuttan feril sem dráttar-
bátur og björgunarskip, en svo eignaðist
Fiskveiðasjóður hana í kringum 1970 og
þá keyptu útgerðarmenn í Sandgerði grip-
inn og breyttu henni í rækjuskip og hún
var um árabil gerö út þaðan og frá Dalvík
undir nafninu Arnarborg. Þegar þeim ferli
lauk var hún úrelt sem fiskiskip og Köfun-
arstööin hf. eignaðist hana og skírði
Orion og þar var hún notuð sem dráttar-
bátur um árabil. Þegar Köfunarstöðin varð
gjaldþrota var Eldingin komin í mikla
niðurníðslu og lá í nokkur ár í hálfgerðu
reiðileysi og vanhirðu þar til Þorgeir
keypti hana.
Þorgeir vinnur allt sjálfur við endur-
bygginguna og ber reyndar mörgum iðn-
aðarmönnum ekki vel söguna sem hann
segir að hugsi meira um kjaftagang, kaffi-
og reykingapásur en að halda áfram að
vinna.
Ég vil hafa spennu í lífinu
„Hann er ódrepandi þessi bátur. Hon-
um er ekki ætlaö að enda í brotajárni eins
og margir héldu. Ég ætlaði upphaflega að
kaupa hann og rífa úr honum vélarnar og
selja en þegar ég var svo kominn með
hann í hendurnar þá hætti ég við og á-
kvað að laga hann."
En er þetta ekki gífurlega dýrt fyrirtæki
og hefði ekki verið tryggara að vinna á-
fram á borpöllunum?
„Þetta mun ekki kosta meira en góður
sumarbústaður," segir Þorgeir. „Það er á-
gætt að labba með kaffibrúsann í vinnuna
á hverjum morgni og horfa svo bara á
sjónvarpið á kvöldin en svo flatt
líf er ekki fyrir mig. Ég verð að
hafa einhverja spennu og óvissu
í þessu og þess vegna er ég aö
þessu."
En hvernig heldur Þorgeir að
gangi að fá tilskilin leyfi fyrir bát
með eins fjölþætta notkun og
hann ætlar Eldingunni?
„Ég hef ekki áhyggjur af því.
Það er góður maður frá Siglinga-
málastofnun sem hefur litið eftir
þessu hjá mér og við skulurn bara
sjá til þegar verkinu er lokið hvað
hann verður skráður fyrir marga
farþega og þess háttar. Ég ætla
ekki að standa í neinu stappi við
reglugerðir og svoleiðis. Ég get
alltaf farið með bátinn í burtu frá
landinu ef svo ber undir." □
Við óskum viðskiptavinum og
landsmönnum öllum gleðilegra jóla
ogfarsœldar á nýju ári.
CNDnlMCf
DALVÍK, SÍMI: 96 - 61670, PÓSTFAX: 96 - 61833
ÆGIR 21