Ægir - 01.12.1995, Side 22
Vita- og hafnamálastofnun setur upp nýtt kerfi:
Á varla sinn líka í heiminum
„Þetta fór af staö sem einstakt verkefni en hefur þróast mikiö meö sjómönn-
unum, í samræmi viö þeirra þarfir. Viö sáum ekki í upphafi hvert þessar til-
raunir mundu leiöa okkur," sagöi Gísli Viggósson forstööumaður rannsókn-
ardeildar Vita- og hafnamálastofnunar í samtali viö Ægi.
Vita- og hafnamálastofnun hefur
tekiö í notkun mjög fullkomið upplýs-
ingakerfi sem miölar til sjófarenda
upplýsingum um ölduhæö, sjólag, veö-
urfar og tíöni alda. Upplýsingarnar
koma til notendanna glænýjar gegn-
um talvél sem er afar auöveld í notkun
og fljótlegt aö fá sérhæföar upplýsing-
ar.
Kerfiö byggir á sístreymi upplýsinga
frá tólf sjálfvirkum veðurstöðvum í
iandi, staösettum í vitum og höfnum
og frá sex úthafsölduduflum sem tengd
eru veðurstöövum. Landinu er skipt í
fjögur svæði svo auðvelt er að nálgast
nákvæmlega þær upplýsingar sem hver
notandi þarf á aö halda. Þessum upp-
lýsingum er ætlað að auka öryggi sjó-
farenda og auðvelda sjósókn þannig að
sjófarendur geti fengið upplýsingar um
aöstæöur til siglinga eða sjósóknar við
landið og inn og út úr höfnum á ná-
kvæmlega sama hátt og stjórnendur
flugvéla fá upplýsingar um veður og
aðstæður til flugs.
Vita- og hafnamálastofnun hefur í
samvinnu við nokkra innlenda aðila,
einkum verkfræðistofuna Hugrúnu,
þróað búnað til að veita sjófarendum
upplýsingar um veður, sjólag og sjávar-
föll. Kerfið byggir á sjálfstæðum mæli-
stöðvum sem komið er fyrir í höfnum.
Mæld er ölduhæð á rúmsjó og í innsigl-
ingum til hafna, flóðhæð og ýmsir veð-
urfars- og ölduþættir. Upplýsingum er
komið á framfæri eftir ýmsum leiðum.
Hafnarverðir lesa af mælitækjum og
gefa upplýsingar í gegnum talstöð.
Unnt er að fá upplýsingar um síma
beint inn á tölvu um borð í skipi eða
með sambandi við símsvara.
Aftakaveðrið 9. janúar 1991
Þróun þessa búnaðar hefur tekið
nokkur ár og brautin hefur ekki alltaf
verið þráðbein og ekki séð enn fyrir
enda hennar. Upphafið má rekja til
þess þegar Vita- og hafnamálastofnun
setti upp öldumælisdufl við innsigling-
una til Hafnar í Hornafirði í kjölfar
mikils aftakaveöurs sem þar varð 9. jan-
úar 1990. Tölva fylgdist meö mæling-
unum og skráði og var hafnarvörður-
inn beðinn að gæta tölvunnar sem var
geymd í húsakynnum hafnarinnar og
skjárinn staðsettur þannig aö sást á
hann inn um gluggann en þar birtust
talnarunur sem gáfu til kynna tíma,
ölduhæð, tíðni o.þ.h.
Sjómenn á Höfn, sérstaklega smá-
bátasjómenn, voru fljótir að átta sig á
eiginleikum þessa nýja tækis og lágu á
glugga hafnarvarðar og í símanum til
hans í tíma og ótíma þegar veður var
tvísýnt. Fram tii þess hafði sjóveður
verið metið eftir ótal þáttum sem ekki
verður brugðið mælitæki á en ekki síst
á sjónmati á því hvernig ósinn leit út
við tilteknar aðstæður. Tölvan gerði
sjómönnum kleift að yfirfæra sína
þekkingu og reynslu yfir á talnarunurn-
ar á skjánum og fljótlega hættu þeir að
fara á fætur þegar veðurútlit var ótryggt
heldur hringdu niður á höfn og létu
horfa á skjáinn.
Vita- og hafnamálastofnun gekk
þegar til móts við þennan áhuga sjó-
mannanna og sett var upp veðurathug-
un í samvinnu við Veðurstofuna og
mælir í Ósnum sem fylgdist með sjáv-
arföllum. Þessar upplýsingar berast
nýjar á skjáinn í aðgengilegu mynd-
rænu formi.
Að hringja í elskuna sína
Síðan var enn bætt um betur og eig-
inkona eins starfsmanns Verkfræðistof-
unnar Hugrúnar las inn á talgervil sem
svarar með þýðri röddu sjómönnum í
veiðihug. Sjómenn eru sannarlega með
á nótunum því á Hornafirði, þar sem
kerfið hefur verið lengst í gangi, voru
skráð allt að 160 símtöl á sólarhring í
desember þegar álagið var mest.
„Sjómennirnir fóru fljótlega að kalla
hana „elskuna sína" og tóku miklu ást-
fóstri vib þessa rödd sem eflaust hefur
átt sinn þátt í áhuga þeirra og já-
kvæðni," sagði Gísli Viggósson.
Kerfið á Hornafirði var upphafið að
því neti sem nú er orðið opið öllum
gegnum símsvarann en í byrjun þessa
árs var samskonar sjálfvirkt innsigling-
arkerfi sett upp í Grindavík svo nú er
hátæknivætt sívirkt flæbi upplýsinga
frá þessum tveimur innsiglingum sem
eiga það sameiginlegt að vera ákaflega
viðsjárverbar en jafnframt fjöifamar.
Auk þess hafa verið settar upp stöðvar í
vitunum á Garðskaga, Bjargtöngum,
Straumnesi, Hornbjargi, Fonti á Langa-
nesi, Dalatanga, Kambanesi og Skarðs-
fjöru, en auk þess eru stöðvar Veður-
stofunnar á Gufuskálum og í Grímsey
tengdar við kerfið. En til viðbótar koma
síðan sex úthafsdufl sem staðsett eru
suöur af Hornafirði, Vestmannaeyjum
og Grindavík, vestur af Garðskaga og
Straumnesi og á Grímseyjarsundi.
Stefnt er að því ab fjölga úthafsduflum
og setja upp ný norðaustur af landinu.
Svipaður búnaöur er kominn í gagn-
ið við Reykjavíkurhöfn, Grundartanga-
höfn, Hafnarfjarðarhöfn, Patreksfjarð-
arhöfn, Dalvíkurhöfn og Þorlákshöfn.
Þetta upplýsingakerfi er einnig afar
mikilvægt fyrir flutningaskip sem þurfa
ab geta nálgast upplýsingar um abstæð-
ur á ókunnum stað. Sjólag, veður og
flóðhæð getur skipt sköpum varðandi
22 ÆGIR