Ægir - 01.12.1995, Page 45
Rými og stærðir:
Eiginþyngd.................. 1595 t
Særými (djúprista 5.50 m)... 2349 t
Buröargeta (djúprista 5.50 m) 754 t
Lestarrými................... 942 m3
Bremsuolíugeymar............. 537 m3
Ferskvatnsgeymar.............. 62 m3
Mæling:
Rúmlestatala................. 846 Brl
Brúttótonnatala............. 1531 BT
Rúmtala................... 3409.6 m3
Vélbúnaður
Aðalvél: Deutz SBV6M-540, sex
strokka fjórgengisvél meö forþjöppu
og eftirkælingu, 2207 KW (3000 hö)
við 600 sn/mín.
Gír og skrúfubúnaður: Lohmann &
Stolterfoth, niðurgírun 3.64:1, skrúfa
4ra blaða Liaaen skiptiskrúfa, þvermál
3200 mm í hring.
Ásrafall: Á fremra aflúttaki aðalvélar
er riðstraumsrafall frá A. Van Kaick,
gerð DIDB 140 H/100, 962 KW (1203
KVA), 3 x 380 V, 50 Hz.
Hjálparvélasamstœður: í vélarúmi ein
Volvo Penta TAMD-120 Ak, 180 KW
(245 hö) vib 1500 sn/mín, sem knýr
166 KW (208 KVA), 3 x 380 V, 50 Hz
riðstraumsrafal. Aftast á milliþilfari
s.b.-megin ein Caterpillar 3412 DITA,
435 KW (591 hö) við 1500 sn/mín,
sem knýr 400 KW (500 KVA), 3 x 380
V, 50 Hz riðstraumsrafal.
Afgasketill: Pyro E 160.
Stýrisvél: Tenfjord I-240-2ESG/625,
tengd Becker flipastýri.
Rafkerfi: 3 x 380 V/220 V, 50 Hz.
Ferskvatnsframleiðsutceki: Atlas
AFGU-l-E-7.
Vökvaþrýstikerfi: Hydraulik Brattvaag
lágþrýstikerfi, fimm rafdrifnar Allweil-
er dælur á 30 bar þrýstingi (2 x 2900 og
2 x 1300, auk minni dælu) og þrjár raf-
drifnar Allweiler dælur á 40 bar þrýst-
ingi (2 x 1300 og 1 x 940 2ja hraða).
Kœlikerfi (frystikerfi): Tvær Sabroe
kæliþjöppur sem þjóna frystitækjum
og lest, kælimiðill Freon 22.
íbúðir
Almennt: íbúðir fyrir 28 menn auk
sjúkraklefa, á þremur hæöum fram-
skips, þ.e. á neðra þilfari, á efra þilfari
Verksmiðjuhvalveiðiskipið Peder Huse við afhendingu árið 1969. Skipið
var búið vinnslulínum fyrir fryst hvalkjöt í lóðréttum og láréttum
plötufrystum, þ.e. skorið hvalbuff fryst í lofttæmdum umbúðum, kjöt fryst í
blokk sem hráefni fyrir kjötiðnað og kjöt fryst í blokk sem dýrafóður.
Einnig með búnað til framleiðslu á hvallýsi úr spiki og beinum. Skipið gat
lestað 500 tonn af hvalkjöti (F&F,4-69).
Ferill skips
Skipið, sem í upphafi hét Peder Huse, er smíðað árið 1969 í Noregi hjá A.M.
Liaaen A/S í Álesund, smíðanúmer 114 hjá stöðinni. Skipið var smíðað sem
hvalveiöiverksmiðjuskip og var á sínum tíma eina hvalveibiverksmiðjuskip
Norðmanna. Við smíðina var tekið mið af því aö skipta yfir í hefðbundnar
skuttogveiðar síðar og var skipið því smíðað meö skuttogarafyrirkomulagi með
tilheyrandi skutrennu. Sú breyting átti sér stað um áramótin 1972-1973, og
var þá sérbúnaður við hvalveiðarnar fjarlægður, frammastur meb útsýnis-
tunnu, göngubrú o.fl., og hvalbakur framlengdur aftur að yfirbyggingu, og
settur í skipið vinnslu- og frystitækjabúnaöur fyrir flakavinnslu. Árið 1977 er
skipt um aöalvél í skipinu, úr 2400 ha June Munktell í núverandi 3000 ha
Deutz. Stærstu breytingarnar eru síðan gerðar árið 1984, en þá er skipið lengt
um 10.44 m, smíöuð ný íbúðarhæö (mun stærri) og brú á hvalbaksþilfar,
íbúöir endurnýjaðar, vinnslu- og frystitækjabúnaður endurnýjaður o.fl.
Skipiö er upphaflega smíðað fyrir Torodd Huse & Co í Álesund í Noregi, en
eigandaskipti verða árið 1981, en þá er skráður eigandi A/S Peder Huse í Ále-
Peder Huse eftir breytinguna í flakafrystitogara 1972-1973. Búiö að
fjarlægja sérbúnað framskips vegna hvalveiða og lengja bakkann aftur að
yfirbyggingu.
sund. Árið 1990 verður K/S Seahunter (A/S Longvatrál, Álesund) skrábur eig-
andi og 1991 er skipið skráb eign K/S Seahunter II (Foinco Invest A/S, Oslo).
Árið 1992 kaupir Sirena Star Management Inc., Kobenhavn í Danmörku skip-
ið og það fær nafniö Sirena Star með heimahöfn í Halifax. Nýr eigandi, Ottó
Wathne hf., á Seyðisfirði, kaupir síðan skipið af norskum banka í maí 1994 og
það er skráð á íslenska skipaskrá 2. júní 1994.
ÆGIR 45