Ægir - 01.12.1995, Page 48
Tæknideild Fiskifélags íslands.
ífebrúar 1994 keypti Siglfirðingur hf.
á Siglufirði verksmiðjutogarann Cape
Nortli frá Kanada og hlaut skipið nafnið
Siglir og kom tii Siglufjarðar í fyrsta sinn
26. febrúar 1994. Skipið var fyrst gert út
hérlendis undir erlendum fána, en 6.
febrúar á pessu ári var skipið skráð á
íslenska skipaskrá sem Siglir SI 250
(2236). Siglir SI er langstœrsta fiskiskip
íslenska flotans, eða um 40% skrokk-
stœrra (margfeldi aðalmála) en stœrstu
Almenn lýsing
Gerð skips: Skuttogari meb fullvinnslu-
búnaði.
Smíðastöð (hönnun): Rickmers Rhede-
rei GmbH, Rickmers Werft, Bremerhaven
í Vestur-Þýskalandi, smíðanúmer 385.
Afhending: Desember 1975
Flokkun: Germanisher Lloyd, * 100
vinnslutogarar okkar. Skipið er smíðað í
mjög háum ísklassa hjá Germanischer
Lloyd. í skipinu er mjölverksmiðja með
fullkominni lýsisvinnslu, sem er nýlunda
í íslensku skipi. Eftir að skipið var keypt
til landsins voru gerðar ákveðnar
breytingar á fiskvinnslulínum, bœtt við
frystitœkjum og nokkrum brúartœkjum,
auk kapalvindu.
Skipstjórar á skipinu eru Ragnar Ólafs-
son og Haraldur Árnason og yfirvélstjóri
Georg Magnússon. Framkvœmdastjóri
útgerðar er Ragnar Ólafsson.
A 5, Fishing Vessel, Ice Class E 3, MC
AUT
Byggingarlag almennt: Tvö þilför
stafna á milli, fjögur vatnsþétt þverþil
undir neöra þilfari, skutrenna upp á
efra þilfar, hvalbakur yfir hálfa
skipslengd með íbúðarhæð og brú
aftantil á hvalbaksþilfari.
Fyrirkomulag innanskips: Undir
neðra þilfari eru framanfrá talið:
Stafnhylki og hágeymar fyrir
brennsluolíu; lestarými (tvískipt) með
botngeymum fyrir brennsluolíu;
vélarúm með botngeymum fyrir
brennsluolíu, stjórnklefa fremst fyrir
miðju og verkstæði b.b.-megin; rými
fyrir mjölverksmiðju (fyrir miðju) og
mjöllest (til hliðar og aftan við) og
botngeymar fyrir ferskvatn (fram-
antil) og lýsi (aftantil); og aftast skut-
geymar fyrir brennsluolíu.
Fremst á neöra þilfari er geymsla
og keöjukassar, en þar fyrir aftan
íbúðir meöfram síöum sem framantii
eru yfir breidd skips. Aftan við
íbúðarými í siðum eru vélarreisn,
verkstæði, rými fyrir frystivélabúnað
o.fl. Á milli íbúöa og aftan við er
fiskvinnslurýmið með fiskmóttöku
aftast. Aftan við móttöku er stýris-
vélarými og til hliðar við neta-
geymslur o.fl.
Á efra þilfari er íbúöarými með
SKIPIÐ - STUTT LÝSING
48 ÆGIR