Ægir - 01.12.1995, Side 51
kyntur ketill, gufuframleiðsla 60/20
tonn á sólarhring, þrýstingur 6.5
kg/cm2.
Rafkerfi: 3 x 380 V/220 V, 50 Hz
riðstraumur. Jafnstraumskerfi (Ward-
Leonard) fyrir togvindu.
Ferskvatnsframleiðslukerfi: Seck, 15
tonn á sólarhring.
Vökvaþrýstikerfi: Rafdrifnar dælur
fyrir vökvaknúna flotvörpuvindu,
kapalvindu og bakstroffuvindur.
Kœli- og frystikerfi: Kerfi frá Grenco
með Freon 22 kælimiðil en frystar og
lestar eru með pækilkerfi (Brine); þrjár
Grasso RC 4211 og ein Grasso RC 311
kæliþjöppur, knúnar af 90(86) kW
rafmótorum. Þá eru fjórar Rotocold
kæliþjöppur fyrir tólf stöðva plötu-
frystana. Fyrir loftkælingu íbúða er
Grasso RC211 kæliþjappa.
íbúðir
Almennt: íbúðir fyrir 59 menn á
þremur hæðum, þ.e. á neðra þilfari,
á efra þilfari og á bakkaþilfari; 10 x
3ja manna, 9 x 2ja manna, 11 x eins
manns klefar, auk sjúkraklefa.
Neðra þilfar: 8 x 3ja manna klefar,
4 x 2ja manna klefar, snyrtiaðstaða
með fjórum salernisklefum og fjórum
sturtuklefum, snyrting með salerni
og sturtu og hlífðarfatageymsla.
Efra þilfar: 2 x 3ja manna klefar, 5
x 2ja manna klefar, eins manns klefi,
sjúkraklefi með sérsnyrtingu, eldhús,
tveir borðsalir, setustofa, matvæla-
geymslur (þurrgeymsla, kælir, frystir),
snyrting með fimm salernisklefum og
þremur sturtuklefum, sánaklefi, sal-
ernisklefi, stakkageymsla o.fl.
Bakkaþilfar: íbúðir skipstjóra og
yfirvélstjóra sem skiptast í setustofu,
svefnklefa og snyrtingu, 8x1 manns
klefar, snyrting með tveimur sal-
ernisklefum og tveimur sturtu-
klefum.
Vinnslurými
Móttaka afla: Fiskmóttaka, um 120
Ht3 að stærð, aftast í vinnslurými og
wögulegt að hleypa í hana um tvær
fiskilúgur, framan við skutrennu.
Vinnslubúnaður: Vinnslulínur fyrir
bolfiskflök, heilfrystingu og mjöl-
vinnslu; ein Bader 412 hausunarvél
fyrir stóran bolfisk; tvær Baader flök-
unarvélar fyrir bolfisk, 99 og 189 V,
tvær Baader 51 roðflettivélar, og tvær
Baader 424 A karfahausunarvélar
(með sugu), tvö Póls FL 125S
flokkunarkerfi, tvær Póls S 125-3
tölvuvogir, Sivaron bindivél.
Mjölverksmiðja: Schlotterhose fiski-
mjölsverksmiðja með 2 x Westfalia
SAOG skilvindum fyrir lýsisfram-
leiðslu, Alfa Laval 210 mjölskilju,
afköst verksmiðju 50 tonn af hráefni
á sólarhring.
Frystitœki: 4 x 13 stöðva láréttir
Jackstone plötufrystar (1930 x 1120
mm) og 2 x 12 stöðva láréttir Jack-
stone plötufrystar (1550 x 1120
mm). Afköst í heilfrystingu um 52
tonn á sólarhring.
Lestarými
Almennt: Ein aðallest (788 m3)
fyrir frystingu og ein mjöllest (545
m3), auk þess ein minni lest (188 m3)
fyrir frystingu.
Frystilest: Aðallest er undir neðra
þilfari, framan við vélarúm, einangr-
uð og klædd með harðviði, búin
kælileiðslum og tréuppstillingu.
Lyfta flytur afurðir í lest. Framantil á
lest er eitt lestarop og losun um
tilheyrandi losunarlúgu á bakka-
þilfari um lúgustokk.
Mjöllest: Til hliðar við og aftan við
mjölverksmiðju er einangruð og
klædd lest, búin til geymslu á
sekkjuðu mjöli. Losun er um lúgu á
togþilfari og í fiskmóttökubotni.
Frystilest (auka): Framan við aðal-
lestina er minni frystilest, einangruð
og klædd með glertrefjahúð og búin
kæliblásurum. Á lest er eitt lestarop
og losun um tilheyrandi losunarlúgu
um lúgustokk.
Vindubúnaður
Togvinda: Ein rafdrifin togvinda
með 12 tromlum, þ.e. tveimur
aðaltromlum, sem taka hvor 3200
m af 28 mmo vír, tveimur gilsa-
tromlum, fjórum grandaratromlum
og fjórum hjálpartromlum, knúin
af 525 ha Garbe Lahmeyer jafn-
straumsmótor (Ward-Leonard).
Togátak vindu á miðja tromlu er
17.5 tonn og tilsvarandi dráttar-
hraði 120 m/mín. Vindan er
staðsett á bakkaþilfari, aftan við
yfirbyggingu.
Flotvörpuvinda: Ein vökvaknúin
Brissonneau and Lotz flotvörpuvinda
með 10.85 m3 tromlu, togátak 9.5
tonn og tilsvarandi dráttarhraði 60
m/mín.
Hjálparvindur afturskips: Tvær 8
tonna rafknúnar Hatlapa Siemens
vindur með tromlu og kopp fyrir
pokalosun, útdrátt á vörpu o.fl.
Bakstroffuvindur: Tvær vökvaknún-
ar J&E hjálparvindur fyrir bakstroffu-
hífingar.
Loswiarvindur: Tvær 3ja tonna raf-
knúnar Hatlapa Siemens vindur fyrir
losunarbómu framan við brú.
Akkerisvinda: Rafdrifin frá Walcker
& Co.
Kapalvinda: Vökvaknúin vinda frá
Vélaverkstæði Sig. Sveinbjörnssonar
hf.
Rafeindatæki, tæki í brú o.fl.
Siglingatœki: Atlas 7600 AC/TM
ratsjá, Decca Bridge Master C251/4
ratsjá, Anschútz Standard 4 gyró-
áttaviti, Anschútz sjálfstýring,
Hoppe vegmælir, Trimble NT 100 og
Navtrac XL (GPS) móttakarar með
Nav Beacon XL leiðréttingarbúnaði,
Macsea stjórntölva.
Fiskileitartœki: Atlas Fischfinder
782 dýptarmælir, Simrad SX 202
sónar, Furuno CN 22 höfuðlínu-
mælir, Simrad FS 3300 höfuð-
línusónar, Wesmar TCS 700 höfuö-
línusónar, Scanmar C 604 aflamælir.
Fjarskiptatœki: Debeg 1500 W
aðaltalstöð með stuttbylgju, tvær
Motorola 250 W millibylgju-
talstöðvar, Sailor RT 143, RT 144 og
RT 2047 örbylgjustöðvar. Furuno
FAX 210 veðurkortamóttakari,
Magnavox MX 2400 Standard A
gervitunglasamskiptatæki, Toshiba
telefax.
Annað: Stjórntæki í brú fyrir tog-
vindu (allar tromlur), flotvörpuvindu
og hjálparvindur afturskips. □
ÆGIR 51