Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1995, Blaðsíða 3

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1995, Blaðsíða 3
TÍMARIT é & lögfræðingA 4. HEFTI 45. ÁRGANGUR DESEMBER 1995 UMRÆÐA Ekki verður betur séð en umræða um dómstóla og einstök dómsmál hafí færst í vöxt á undanfömum árum. Sama máli sýnist gegna um störf lögmanna. Þótt ekki liggi í augum uppi af hvaða ástæðum það er má leiða líkur að því að þar eigi nokkurn hlut að máli aðskilnaður dómsvalds og umboðsvalds í héraði sem fram fór árið 1992 og tilkoma nýrra héraðsdómstóla. Við það urðu allar línur skýrari í réttarkerfinu en áður höfðu verið og auðveldara fyrir þá sem ekki þekktu gjörla til að gera sér grein fyrir því hvernig réttarkerfið er skipulagt og hvernig framgangur mála er innan þess. Þó skortir nokkuð á að menn átti sig til fullnustu á ýmsum þáttum þess, t.d. ber enn nokkuð á því að ekki séu dregin mörk á milli rannsóknarvalds, ákæruvalds og dómsvalds, því að stundum er þessum þáttum réttarkerfisins slengt saman og þeir allir settir undir hatt dóms- valdsins. Engu að síður virðist miða verulega í þá átt að mönnum verði ljós skilsmunur þessara valdþátta og mætti það vera til marks um að almenn þekk- ing hafi aukist á þessu sviði. Umræðan fer fram að stórum hluta á vegum fjölmiðlafólks, þótt töluvert sé einnig um það að einstaklingar og forsvarsmenn félagasamtaka leggi orð í belg. Allt lýðræði á að þola umræðu, bæði góða og vonda, en umræðan er að sjálfsögðu misjafnlega marktæk og fer það eflaust að mestu eftir því á hvaða grunni hún er byggð. Marktæk umræða hlýtur að verulegu leyti að byggjast á því að sá sem tekur þátt í umræðunni hafi ákveðna lágmarksþekkingu á umræðusviðinu og staðreyndum þess máls sem til umfjöllunar er hverju sinni. Að öðrum kosti er hætta á því að umræðan verði ómarktæk, jafnvel hlægileg, ekki síst þegar menn gera sig digra, stundum skaðleg, í besta falli gagnslaus, nema þá að því leyti að þátttakandinn kann að hafa þjónað lund sinni sér til sáluhjálpar. Það er gömul saga og ný að þekkingu á staðreyndum þarf til rökréttrar hugsunar og er hún þeim mun nauðsynlegri láti menn hugsun sína koma fyrir sjónir almennings. 245
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.