Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1995, Qupperneq 62

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1995, Qupperneq 62
AÐALFUNDUR LÖGMANNAFÉLAGS ÍSLANDS 1995 Aðalfundur Lögmannafélags íslands var haldinn í Ársal Hótel Sögu föstudag- inn 10. mars 1995. Fundarstjóri var kosinn Ásgeir Thoroddsen hrl. og fundar- ritari Hjörtur Bragi Sverrisson hdl. Formaður félagsins Ragnar Aðalsteinsson hrl. flutti skýrslu stjómar til aðal- fundarins. I upphafi máls síns minntist formaðurinn látinna félagsmanna á starfsárinu, þeirra Einars Sigurðssonar hrl., Guðmundar Markússonar hrl., Harðar Olafssonar hrl., Jóhanns Péturs Sveinssonar hdl., Jóns Þorsteinssonar hrl. og Ragnars Steinbergssonar hrl. Skýrsla stjórnarinnar fyrir starfsárið 1994-1995 lá fyrir aðalfundinum og vísaði formaðurinn í hana um ýmis þau verkefni, sem stjómin vann að á starfs- árinu. Formaðurinn vék því næst að hlutverki félagsins sem umsagnaraðila um löggjafarmál og framkvæmd laga. Formaðurinn nefndi í þessu sambandi til- lögu, sem fyrirhugað væri að leggja fram á fundinum, um skerðingu á málfrelsi félagsins. Hlutverk félagsins væri meðal annars að fylgjast með lagasetningu og lagaframkvæmd. Félagið hefði veitt umsagnir um lagafrumvörp, þó þau væru pólitísk í eðli sínu. Formaðurinn taldi að stjórn félagsins yrði ekki bundin af þessari tillögu, yrði hún samþykkt. Minnt var á umsagnir félagsins um laga- frumvörp um söluskatt á lögmannsþjónustu, stjómskipunarlagafrumvarp um landssvæði utan einstaklingseignar, um virðisaukaskatt, um gjafsókn, um rétt- indi sakborninga, lögfræðiaðstoð við efnalítið fólk, jafnréttismál, jákvæða mis- munun við ráðningu starfsfólks og lögfestingu Mannréttindasáttmála Evrópu. Af þessu mætti sjá að félagið sinnti hlutverki sínu um að efla rétt og hrinda órétti, án tillits til þess hver hefði verið formaður hverju sinni. Formaðurinn fjallaði um tilurð umsagnar um stjómarskrárfrumvarpið og hvers vegna farið var út í það að ráða sérstakan lögmann til að gera drög að um- sögninni. Drögin vom síðan staðfest, eftir nokkar breytingai', af formanni laga- nefndar og formanni félagsins, eftir að hafa verið rædd og samþykkt á fundi stjórnar og laganefndar 25. janúar 1995. Umsögninni var síðan dreift til allra lögmanna, alþingismanna og fjölmiðla. Formaðurinn sagði að athugasemdir L.M.F.I. í umsögninni hefðu, ásamt öðmm umsögnum, leitt til breytinga á frumvarpinu og að hann væri stoltur af því starfi, sem félagið hefði unnið í þessu máli. Þær breytingai', sem gerðar voru á frumvarpinu, vora breytingar á ákvæði um jafnrétti fyrir lögum, þar sem bætt hefði verið inn í að menn ættu að njóta mannréttinda án mismununar. Þá hefði ný málsgrein um jafnrétti kynj- anna verið sett inn og einnig hugtök eins og pyntingar og réttlát málsmeðferð. Bætt var við ákvæði um hleranir, takmarkanir á tjáningarfrelsi voru bundnar við það að vera nauðsynlegar og samræmast lýðræðishefðum, hugtakinu stéttarfé- lög var bætt inn í frumvarpið og réttur til aðstoðar vegna sjúkleika og réttur til almennrar menntunar. I máli sínu fjallaði formaðurinn einnig um reglur IBA um sjálfstæða, óháða lögmannastétt, sem fjalla meðal annars um að í laganámi skuli tekið tillit til 304
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.