Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1995, Blaðsíða 29

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1995, Blaðsíða 29
Stundum er unnt að gera aðrar kröfur í hjónaskilnaðarmáli en kröfu um að skilnaður verði veittur. Kröfu um forsjá barns má gera í hjónaskilnaðarmáli, sbr. 1. mgr. 34. gr. barnalaga og kröfu um lífeyri sem ekki næst samkomulag um er unnt að gera fyrir dómi þar sem skilnaðarmál er til meðferðar, sbr. 1. mgr. 51. gr. hjúskl. Samkvæmt þeirri lagagrein er leyst úr því í dómi hvort krafa um greiðslu lífeyris verði tekin til greina en fjárhæð lífeyris ákveður sýslumaður. Samkvæmt 4. mgr. 51. gr. sömu laga getur dómstóll breytt úrlausn sinni um skyldu til greiðslu lífeyris að kröfu aðila samkvæmt nánari skilmálum. Einnig er unnt að höfða sérstakt mál til breytinga á samningi hjóna um greiðslu lífeyris samkvæmt 52. gr. hjúskl. enda sé sýnilega ósann- gjarnt vegna breyttra aðstæðna að halda samningnum til streitu. Agreiningur foreldra um forsjá og framfærslueyri kemur ekki í veg fyrir að skilnaður verði veittur að kröfu annars hjóna að öðrum skilyrðum uppfylltum, sbr. 2. mgr. 44. gr. hjúskl. Ef hjón gera hins vegar samkomulag um forsjá barna, framfærslueyri og aðra skilnaðarskilmála skulu þau staðfesta samkomulagið fyrir sýslumanni eða dómara áður en skilnaður er veittur, sbr. 1. mgr. 43. gr. hjúskl. Við hjónaskilnað ber að skipta milli hjóna eignum þeirra og skuldum. Gert er ráð fyrir því í 6. gr. hjúskl. að hjón geti samið um fjárskipti sín vegna skilnaðar en ella geti annað eða bæði krafist opinberra skipta til að slíta fjárfélagi, sbr. einnig 2. mgr. 98. gr. laga um skipti á dánarbúum o. fl. nr. 20/1991. Ekki má veita hjónum skilnað nema fyrir liggi samkomulag þeirra um fjárskipti eða opinber skipti verið hafin til slita á fjárfélagi, sbr. 1. mgr. 44. gr. hjúskl. Samn- ing hjónanna um fjárskipti skulu þau staðfesta fyrir sýslumanni eða dómara, sbr. 1. mgr. 95. gr. hjúskl. Ef hjón eru eignalaus ber þeim að staðfesta yfirlýs- ingu sína um það fyrir sýslumanni eða dómara eftir því hvar málið er til með- ferðar, sbr. sömu lagagrein. Kröfu um opinber skipti skal beina til héraðsdóms, sbr. 97. gr. hjúskl. og 1. mgr. 101. gr. laga um skipti á dánarbúum o. fl. Héraðsdómari kveður upp úr- skurð um hvort opinber skipti fari fram, sbr. 102. gr. sömu laga. Samsvarandi reglur gilda um mál til ógildingar á hjúskap, sbr. 2. mgr. 98. gr. laga um skipti á dánarbúum o. fl. Einnig er unnt að krefjast opinberra skipta samkvæmt XIII. kafla hjúskl. og 99. gr. laga um skipti á dánarbúum o. fl. án þess að leitað hafi verið eftir hjónaskilnaði. Þá er í ákveðnum tilfellum unnt að bera ágreining hjóna um fjárslit vegna skilnaðar eða ógildingar hjúskapar undir héraðsdóm samkvæmt lögum um skipti á dánarbúum o. fl. án þess að opinber skipti fari fram. Verður að vísa til skiptaréttarins í þessu sambandi einkum 2. mgr. 125. gr. laga um skipti á dánarbúum o. fl. Önnur mál sem unnt er að reka fyrir dómstólum samkvæmt hjúskaparlögum eru mál til ógildingar á samningi um fjárskipti, sbr. 2. mgr. 95. gr. hjúskl. Þar segir að unnt sé að fella samning hjóna úr gildi sem þau hafa gert um fjárskipti sín vegna skilnaðar ef samningurinn var bersýnilega ósanngjarn á þeim tíma er til hans var stofnað. 271
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.