Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1995, Blaðsíða 28

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1995, Blaðsíða 28
meðlags, yrði vísað frá dómi samkvæmt 1. mgr. 24. gr. laga um meðferð einka- mála nr. 91/1991. Hins vegar væri unnt að höfða mál til endurskoðunar á með- lagsúrskurði sýslumanns samkvæmt 60. gr. stjómarskrárinnar sem segir að dómstólar skeri úr öllum ágreiningi um embættistakmörk yfirvalda. Einnig er rétt að benda á að í sumum tilfellum getur verið vandasamt að leysa úr því hvort úrskurðarvald er falið sýslumanni og að hvaða marki. í 18. gr. bamalaga er sýslu- manni veitt heimild til að breyta samkomulagi foreldra um framfærslu bams ef rökstudd krafa kemur fram um það enda telji sýslumaður að aðstæður hafí breyst verulega eða samningur gangi í berhögg við þarfir bams. í dómi Hæstaréttar frá 23. júní 1994 í dómasafni Hæstaréttar 1994 bls. 1532 voru ákvæði bamalaga túlkuð þannig að sýslumaður hefði takmarkaðar heimildir til að breyta samningi foreldra um meðlög aftur í tímann. Taldi Hæstiréttur því ekki raunhæft úrræði fyrir sóknaraðila að vísa honurn til sýslumanns með kröfur sínar og felldi frá- vísunarúrskurð héraðsdómara úr gildi en héraðsdómarinn hafði talið í hinum kærða úrskurði að sýslumaður ætti úrlausnarvald um sakarefnið. Lagði Hæsti- réttur fyrir héraðsdómara að taka málið til efnislegrar meðferðar. 1.1 Mál samkvæmt hjúskaparlögum í 113. gr. hjúskaparlaga (hjúskl.) em talin upp þau mál sem teljast til hjú- skaparmála, en það eru mál til ógildingar á hjúskap, hjónaskilnaðarmál, mál til úrlausnar á því hvort hjúskapur sé gildur eða ekki gildur og mál til úrlausnar á því hvort réttaráhrif skilnaðar að borði og sæng séu niður fallin. í þessari um- fjöllun er rétt að gera sérstaklega grein fyrir hjónaskilnaðarmálum en mál til ógildingar á hjúskap og önnur hjúskaparmál sem talin voru hér að framan em fremur sjaldgæf. Þó er rétt að nefna að skylt er að ógilda með dómi hjúskap skyldmenna í beinan legg og systkina svo og tvíkvænishjúskap nema fyrra hjú- skap hafi lokið áður en mál til ógildingar er höfðað, sbr. 27. gr. hjúskl. Hjónaskilnaðarmál eru mál sem em höfðuð til að fá úrlausn dómstóls um hjónaskilnað. Er þá gerð sú krafa fyrir dóminum að skilnaður verði veittur, hvort sem krafan er um skilnað að borði og sæng eða lögskilnað. Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. hjúskl. veita sýslumenn leyfi til skilnaðar að borði og sæng þegar hjón eru sammála um að leita slíks skilnaðar. Einnig veita sýslu- menn lögskilnað þegar hjón em sammála um að leita lögskilnaðar og liðnir eru sex mánuðir frá því að leyfi var gefíð út til skilnaðar að borði og sæng og réttar- áhrif skilnaðarins eru ekki fallin niður. Einnig má samkvæmt 2. mgr. 41. gr. sömu laga leita skilnaðar hjá sýslumönnum í öðrum tilfellum ef hjón em sam- mála um það en ella hjá dómstólum. Úrlausn á hjónaskilnaði fæst því í megin- atriðum hjá sýslumanni ef hjón eru sammála um að leita eftir skilnaði svo og ef þau eru sammála um að leita eftir skilnaðinum hjá sýslumanni. Ef svo er ekki fæst úrlausn á skilnaðarmáli fyrir dómstólum. Ef sýslumaður neitar að veita skilnað er unnt að skjóta þeirri synjun til dómsmálaráðuneytisins, sbr. 3. mgr. 41. gr. hjúskl. Leita má skilnaðar fyrir dómstólum ef sýslumaður eða dóms- málaráðuneyti hafa synjað um leyfi til skilnaðar, sbr. sömu lagagrein. 270
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.