Tímarit lögfræðinga - 01.12.1995, Blaðsíða 64
Almennar umræður um skýrslu stjómarinnar byrjuðu með því að Jón Steinar
Gunnlaugsson hrl. óskaði eftir að fá að ræða fundarsköp fundarins. Taldi lög-
maðurinn ræðu formannsins hafa verið frekar langa og taldi hann hana vera
andmælaræðu gegn tillögu, sem ætlunin væri að leggja fram síðar á fundinum.
Lögmaðurinn fór fram á að þessi tillaga yrði lögð fram strax og rædd í fram-
haldi af ræðu formannsins. Formaðurinn tók þá til máls og útskýrði tilurð ræðu
sinnar og sagði hana hafa verið samda löngu áður en fréttist af umræddri til-
lögu. Fundarstjóri ákvað að verða ekki við ósk Jóns Steinars Gunnlaugssonar
hrl. um að fá að leggja tillöguna fram strax.
Fráfarandi formaður laganefndar Magnús Thoroddsen hrl. gerði grein fyrir
störfum nefndarinnar. Helstu lagafrumvörp, sem nefndin fjallaði um á starfs-
árinu, vom frumvörp um vátryggingarsamninga, jafnrétti kynjanna, skattadóm-
stól, bókhald og ársreikninga, vexti, meðferð opinberra mála, tæknifrjóvgun,
hjúskaparlög, breytingar á barnalögum, læknaráð, lögfesting Lúganósamnings-
ins um aðfararhæfi erlendra dóma og úrskurða á íslandi o.fl. Þá nefndi formað-
urinn umsögn um stjórnarskrárframvarpið, þar hefði ekki verið á ferðinni hrein
umsögn, heldur frekar hugvekja og hugmyndir.
Viðar Már Matthíasson hrl. flutti skýrslu bókasafnsnefndar. Vísaði hann
meðal annars til hinnar skriflegu skýrslu stjómarinnai', þar sem fjallað var um
starfsemi nefndarinnar. Hann sagði bókakaup ársins fyrst og fremst standa
saman af nýjum norrænum bókum á flestum sviðum réttarins, auk bóka á ensku
um sjórétt og flutningarétt. Sagði hann að 220 bækur hefðu verið keyptar til
safnsins á árinu. Þá kynnti hann áætlun um að kaupa öflugri tölvu á safnið.
Framkvæmdastjóri félagsins Marteinn Másson gerði grein fyrir ársreikning-
um fyrir árið 1994. Hjá honum kom fram að tekjur og gjöld félagsins hefðu
aukist lítillega. Félagsgjöld hefðu aukist vegna fjölgunar félagsmanna. Húsa-
leigutekjur hefðu lækkað, þar sem leigusamningur leigjanda hefði mnnið út um
mitt árið. Kostnaður vegna erlendra samskipta á árinu hefði hækkað frá fyrra ári
vegna árgjalds til CCBE. Fram kom að innheimta félagsgjalda hefði verið erfíð-
ari en oft áður, en það mætti ef til vill rekja til efnahagsástandsins í þjóðfélag-
inu.
Næst var gengið til kosninga í stjóm og nefndir. í aðalstjóm voru kosin Þór-
unn Guðmundsdóttir hrl. formaður félagsins, og meðstjómendurnir Hreinn
Loftsson hrl. og Sigurmar K. Albertsson hrl. Fyrir sitja í stjórninni Ásgeir
Magnússon hdl. og Láms L. Blöndal hdl. í varastjóm voru kosin Bjarni
Ásgeirsson hrl., Bjami G. Björgvinsson hdl. og Kristín Briem hdl.
Eftir kosningu stjómar og annarra trúnaðarmanna félagsins, var komið að
dagskrárliðnum önnur mál.
Þorsteinn Júlíusson hrl. lagði fram eftirfarandi tillögu til ályktunar:
Aðalfundur Lögmannafélags íslands, haldinn á Hótel Sögu föstudaginn 10. mars
1995, telur að það samrýmist ekki eðli og tilgangi Lögmannafélagsins samkvæmt
samþykktum þess og ákvæðum laga um málflytjendur, sem kveða á um skylduaðild
lögmanna að félaginu, að félagið eigi aðild að eða taki þátt í starfsemi félagasamtaka
306