Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1995, Blaðsíða 21

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1995, Blaðsíða 21
aðferð við tréhöfuðið í dæmisögu Faídrosar sem væri ef til vill fallegt, en hefði því miður engan heila.81 Kant er náttúruréttarmaður í þeim skilningi að hann telur að það séu til óbreytanleg verðmæti sem maðurinn þekki af skynsemi sinni. Siðalögmál hans - hið skilyrðislausa boðorð - er orðað þannig: „Breyttu einungis þannig að þú getir viljað að lífsreglan sem þú breytir eftir verði að almennu lögmáli". Sið- ferðileg hegðun varðar hegðun gagnvart öðrum manneskjum, sem hver og ein er skynsemisvera og hefur óskerðanlegt gildi í sjálfri sér, hún er „sjálfráða sið- ferðisvera“. Og til að virða þetta verðum við að virða „frelsið“ og ef við hlýðum siðalögmálinu erum við frjáls. Af þessu leiðir að gagnkvæm virðing er nauð- synleg og ein framsetning skylduboðsins verður því sú að aldrei megi koma þannig fram við nokkra manneskju, sjálfan sig eða aðra, að verið sé að nota hana í einhverju skyni, heldur ber að virða hið sjálfstæða takmark sem sérhver persóna hefur með lífi sínu. Að hneppa aðra manneskju í þrældóm er skýrt dæmi um brot á þessu lögmáli Kants. Það verður ekki skilið við þetta sögulega yfirlit um kenningar náttúruréttar án þess að nefna John Finnis háskólakennara í Oxford.82Árið 1980 kom út rit eftir hann sem nefnist á frumálinu Natural Law and Natural Rights. Þetta er tíma- mótaverk vegna þess að hann setur fram frumlega náttúruréttarkenningu. Hún er ekki ný að öllu leyti, því að hann tengir hana fyrst og fremst við verk Aristótelesar og Tómasar frá Akvínó. En hún er ný að því leyti að Finnis freist- ar nýrrar framsetningar og bendir á margt sem hann telur eldri fræðimenn hafa misskilið eða mistúlkað. Finnis tekur undir þá skoðun að náttúruréttur sé til í sama skilningi og stærð- fræðilögmálin séu til. Hann staðhæfir að til séu viss mannleg grundvallargæði, sjö frumþættir mannlegrar farsældar: líf, þekking, leikur, fegurð, vinátta, trú og viturleiki, og náttúruréttur sé samspil grundvallargæðanna og „meginreglna hyggjuvits um skipan mannlífs og samfélags11.83 Grundvallargæðin eru hlutlæg í þeim skilningi að sérhver skynsöm manneskja hlýtur að viðurkenna að mönn- um beri þau. Ekkert þeirra er öðru fremra. Þau eru óháð siðferðilegu mati. Frumgæðin eru ekki afleidd af neinu eins og nafn þeirra ber með sér, en önnur lífsgæði eru leiðir til að njóta þeirra. Með öðrum orðum þá eru þau sjálfgefin og nauðsynlega tengd mannlegri farsæld. Á aristótelískan hátt spyr Finnis hvað það sé sem geri lífið þess virði að lifa því, geri það verðmætt og eftirsóknarvert. Og það er einmitt það að njóta hinna sjö lífsgæða. Og til að finna þau spyrjum við ekki hvað sé í samræmi við mann- legt eðli heldur hvað sé skynsamlegt. Þar sem manneskjan er félagsvera þá verður að skoða frumgæðin í ljósi mannlegs samfélags. Aðeins í samfélagi eru 81 d'Entréves, sama rit, bls. 110. 82 Sjá Garðar Gíslason, „Náttúruréttur í nýju ljósi“, Eru lög nauðsynleg?, sama rit. 83 Finnis, sama rit, bls. 280, sjá sama, kafla III og V. 263
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.