Tímarit lögfræðinga - 01.12.1995, Blaðsíða 20
NÍTJÁNDA ÖLDIN OG NÚTÍMINN
Skoski heimspekingurinn David Hume76 hlýtur að teljast talsverður örlaga-
valdur í sögu náttúruréttarkenninga. Hann og fleiri samtímamenn hans svo sem
Adam Smith77 höfnuðu kenningunum um samfélagssáttmálann og yfirleitt þeim
fullyrðingum um tilveruna sem ekki yrðu rannsakaðar með skynfærunum. Að-
eins á þann hátt töldu þeir að komast mætti að því hvernig hlutimir em í raun
og veru, það væri fánýtt að reyna að skýra reynslu og þekkingu „með því að
skírskota til hulinna krafta“.78 Hann taldi að allar gerðir okkar mætti rekja til
langana okkar og að skynsemin segði okkur hvemig við gætum satt þær, en hún
segði okkur ekki hvað við ættum að þrá. Hume hafnaði þess vegna náttúrurétti.
Hann og sú raunhyggja sem hann boðaði höfðu mikil áhrif á löggjafarhyggju-
menn 19. og 20. aldar, sem gagnrýndu náttúruréttinn harkalega.
Á 19. öld fara menn að aðhyllast aðra heimspekiskóla svo sem nytjastefnu,
efnishyggju og sögustefnu. Jeremy Bentham, lögspekingur og mikill andstæð-
ingur náttúruréttar, var nytjastefnumaður. Hann var gagnrýndur fyrir það að
miða allt við ánægju sem væri bara tilfinning, og að hann horfði fram hjá þeirri
reisn sem gæfi lífi mannsins sérstakt gildi. John Stuart Mill79 lagði nokkuð
annan skilning í hamingjuhugtakið. Hjá honum er ánægja ekki bara tilfinning
heldur eru dygð, menntun, heilbrigði og list þættir hennar. Því taldi hann nauð-
synlegt að mennta einstaklingana svo þeir mættu vita hvar hina sönnu ánægju
væri að finna.
Samkvæmt nytjastefnunni lítum við til afleiðinga athafna okkar. Siðferðileg
réttlæting athafna okkar ræðst af afleiðingum þeirra, því böli eða þeirri ham-
ingju sem leiðir af þeim.
Það er líklega hinn áhrifamikli heimspekingur Immanuel Kant 80 sem blæs
aftur byr í segl náttúruréttar þegar hann segir að lögfræðingar eigi að leita „til
hreinnar skynsemi sem uppsprettu staðhæfinga sinna í því skyni að leggja
grundvöll að allri mögulegri löggjöf‘. Lögfræðingar geti aldrei svarað spurn-
ingunni „hvað em lög“? með því að rannsaka hvað lög segi eða hafi sagt, því
það lýsi aðeins lögum á ákveðnum stað og tíma. Kant líkti slfkrí rannsóknar-
76 David Hume (1711-1776) var skoskur heimspekingur og sagnfræðingur, merkisberi raun-
hyggju og efahyggju. Eitt helsta verk hans er A Treatise on Human Nature.
77 Adam Smith (1723-1790) var skoskur siðfræðingur sem varð brautryðjandi klassískrar
hagfræði.
78 Páll S. Ardal, Inngangur að D. Hume, Samrœður um trúarbrögð, þýðandi Gunnar Ragn-
arsson. Hið íslenska bókmenntafélag Reykjavík, 1972, bls. 21 og 39.
79 John Stuart Mill (1828-1906) var enskur heimspekingur og hagfræðingur einn af frum-
kvöðlum nytjastefnu og frjálslyndisstefnu í siðfræði. Eitt kunnasta verk hans er Frelsið
(1859), sem komið hefur út í íslenskri þýðingu Þorsteins Gylfasonar, Hið íslenska bók-
menntafélag, 1971.
80 Immanuel Kant (1724-1804) var þýskur heimspekingur.
262