Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1999, Síða 5

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1999, Síða 5
Þótt nú sé staðan sú að fangelsi á íslandi rúmi mun fleiri en þar þurfa að sitja segir það ekki alla söguna um stöðu mála. Island er aðili að Evrópusamningi um vamir gegn pyndingum og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu en þessi samningur er frá árinu 1991. Eftirlit með því að aðildarríkin virði þennan samning hefur nefnd sem ber heitið „Evrópunefnd um vamir gegn pyndingum og ómannlegri eða vanvirðandi með- ferð eða refsingu“, en er í daglegu tali kölluð „pyndinganefndin“. I skýrslu nefndarinnar um heimsókn hennar til Islands dagana 29. mars til 6. apríl 1998, sem er 66 síðna löng í íslenskri þýðingu, kemur fram að hún hefur heimsótt öll fangelsi landsins nema Kvíabryggju. Það er jafnan svo að „glöggt er gests augað“. Pyndinganefndin gerir ýmsar athugasemdir við fangelsismálin sem fæstar geta talist stórvægilegar. Hún segir vistunaraðbúnað í íslenskum fangelsum hvergi verri en svo að viðunandi geti talist og sums staðar sé hann með ágætum. Tækifæri fanga til athafna og starfs- menntunar þurfi að auka og bæta þurfi læknisþjónustu, en það mun þegar hafa verið gert að einhverju leyti. Nefndin hvetur til þess að komið verði í fram- kvæmd fullunnum meðferðaráætlunum um baráttu gegn áfengis- og fíkniefna- notkun fanga. Nefndin kveðst fáar ásakanir hafa heyrt um illa líkamlega með- ferð fanga en nýleg andlát fanga í fangelsinu á Litla-Hrauni sé mun meira áhyggjuefni. Veigamestu athugasemdir nefndarinnar eru í fyrsta lagi þær að gera verði tafarlausar ráðstafanir til þess að tryggja að ungir fangar séu vistaðir aðskildir frá fullorðnum föngum og veittur kostur á því athafnalífi sem samræmist þörf- um þeirra. I öðru lagi leggur nefndin áherslu á það að yfirvöld veiti byggingu fyrirhug- aðs nýs gæsluvarðhaldsfangelsis í Reykjavík eins mikinn forgang og framast sé unnt og segir: „Þetta myndi gera kleift að vista alla gæsluvarðhaldsfanga af Reykjavíkursvæðinu þar sem þeir eiga fjölskyldur sínar og hafa sín félagslegu tengsl í grennd við aðsetur viðeigandi rannsóknar- og ákæruvaldshafa, og einnig að veita föngum kost á starfsskipulagi sem hentar“. Nefndin telur aðbúnað til vistunar gæsluvarðhaldsfanga góðan á Litla- Hrauni en öðru máli gegni um þá lifnaðarhætti sem þessir fangar eigi kost á. Nefndin kveðst hafa beint athygli sinni sérstaklega að einangrunarvistun gæslu- varðhaldsfanga á Islandi í þágu rannsóknar og telur það enn áhyggjuefni sitt þótt ástandið að þessu leyti hafi skánað frá síðustu heimsókn nefndarinnar til Is- lands en hún var árið 1993. Segja má að það hafi vakið töluverða athygli dómara hve aðbúnaður þeirra gæsluvarðhaldsfanga sem eru í einangrun á Litla-Hrauni er fábrotinn. Sýndist aðbúnaður afplánunarfanga mun betri. Vaknar sú spuming hvort nokkur ástæða sé til annars en að búa betur að þessum gæsluvarðhaldsföngum, hér er ekki um sakfellda menn að ræða og ástæðan fyrir vistun þeirra í flestum tilfellum sú að koma í veg fyrir að þeir geti haft áhrif á rannsókn mála. Það er óþarft að láta 71
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.