Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1999, Qupperneq 11

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1999, Qupperneq 11
ar veiðireynsla var lögð til grundvallar úthlutun kvóta. Hér blasir við ein þver- stæðan í umræðunni. Yfirráð útvegsmanna yfir auðlindinni eru varin með skír- skotun til sígildra hugmynda um eignarrétt, en fiskveiðikerfið grefur undan þessum sömu hugmyndum. 2.2.3 Fáveldi og byggðaröskun Með fáveldi11 er átt við þá staðreynd að kvótar hafa smám saman safnast á æ færri hendur.12 Það kann að vera hagkvæmt, en er það réttlátt? Eignatilfærslu og misskiptingu auðs má ekki leggja að jöfnu við þjóðfélagslegt ranglæti. Mis- skipting auðs getur verið réttlætismál. Það er heldur ekki auðsöfnunin sem slrk sem fólk skynjar sem ranglæti, heldur þau áhrif sem þessi samþjöppun veiði- heimilda á fárra manna hendur hefur á samfélagsgerðina og sjávarútveginn al- mennt. Um þetta segir Gísli Pálsson, mannfræðingur: Afleiðingin verði ný stéttaskipting og mun djúpstæðari en sú sem Islendingar eiga að venjast. ... Skipstjórar og áhafnir þeirra verði einungis launamenn í þjónustu þeirra stórfyrirtækja sem eiga bátana og veiðileyftn.13 Og um orsökina segir Gísli að „með kvótakerfinu hafi ein mikilvægasta auð- lind þjóðarinnar verið falin fámennum forréttindahópi til einkaafnota“. Þetta er kjaminn í gagnrýninni. En hér gildir sama viðbára og áður: Ef úthlutun veiði- heimildanna sem lögfest var 1983 og 1990 er réttlætanleg, þá er erfitt að gagn- rýna afleiðingar hennar ef viðurkenndum leikreglum hefur verið fylgt í þeirri eignatilfærslu sem síðan hefur átt sér stað. Þetta á líka við um þá byggðaröskun sem stundum er haldið fram að hafi orðið vegna kvótakerfisins og þess fáveldis sem það hafi alið af sér. Það getur vart verið réttlætismál að halda óraskaðri byggð í landinu. En það er ranglæti hafi fólkið í sjávarbyggðum landsins verið hlunnfarið við úthlutun veiðiheim- ildanna þegar kvótakerfið var tekið upp. 2.2.4 Einokun sægreifanna Ein meginafleiðing laganna frá 1990 er að „eftirleiðis eru kaup veiðiheimilda einasta leið þeirra, sem ekki höfðu veiðireynslu á viðmiðunarárunum, til að komast inn í kerfið“.14 Þetta er stundum talið ósanngjamt vegna þess að það 11 í Stjómspekinni (VII. bók) kallar Aristóteles það stjómarfar fáveldi þar sem fáir auðugir menn stjóma með það fyrir augum að auðgast. 12 Samkvæmt athugun Agnars Helgasonar og Gísla Pálssonar voru kvótaeigendur árið 1991 1155 talsins og þar af áttu 16 „lénsherrar" u.þ.b. fjórðung allra veiðiheimilda. Snemma árs 1997 hafði kvótaeigendum fækkað í 706 og þar af áttu 22 „lénsherrar" um helming allra veiðiheimilda. Agnar Helgason og Gísli Pálsson: „Contested Commodities: The Moral Landscape of Modernist Regi- mes“, bls. 456. Sjá einnig grein þeirra „Kvótakerfi: kenning og vemleiki". Skímir (vor 1999), bls. 26-52. 13 Gísli Pálsson: „Fiskveiðistefna og félagsleg ábyrgð“. Hagsæld í húfi, bls. 29. 14 Þorgeir Orlygsson: „Hver á kvótann?". Tímarit lögfræðinga, lsta hefti 48da árgangs (febrúar 1998), bls. 46. 77
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.