Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1999, Síða 14

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1999, Síða 14
1. Menn eignast náttúrugœði með því að nota þau eða vinna við þau á ein- hvern þann hátt sem talist getur undirbúningur undir notkun, að því til- skyldu að 2. þeir skerði hvorki kjör annarrafrá því sem er né útiloki þáfrá því sem þeir hafa þegar. Nú er spurningin: fullnægir fiskveiðikerfið þessum skilyrðum? Við skulum skoða hvort þeirra fyrir sig og leita svara við þessari spumingu. Meginhugmyndin í eignamámskenningunni er einföld: þegar maður aflar einhverra gæða úr náttúrunni með vinnu sinni, þá hefur hann blandað eigin- leikum sínum við þau. Þar með eru þau ekki lengur í almennri sameign, heldur verða þau óumdeild séreign hins vinnandi manns.23 Þessi hugmynd virkar sann- færandi við einföld vinnuskilyrði, en því flóknari sem framleiðsluhættimir eru þeim mun erfiðara er að beita henni. Þannig virðist augljóst að trillusjómaður- inn sem rær einn síns liðs á eigin báti, innbyrðir fiskinn og slægir eigin höndum, hafi á þeim fiski ótvíræðan eignarrétt. En málið verður ólíkt flóknara þegar margir hásetar á dekki frystitogara taka við hali úr trolli sem dregið er af skut- togara í eigu útgerðarmanns sem borgar þeim laun fyrir verkið. Hin hefðbundna lausn á þessum vanda hefur verið sú að eignarrétturinn sé eiganda framleiðslutækisins, í þessu tilviki eiganda togarans. Það leiðir ekki beinlínis af reglu Lockes, þótt vissulega megi færa sterk rök í hans anda fyrir því. Utgerðarmenn hafa skapað sjómönnum og fiskvinnslufólki vinnuskilyrði með því að fjárfesta í atvinnutæki, veiðiskipi, þar sem aflinn er dreginn úr sjó og hann fluttur að landi. í ljósi þessa er það býsna harkalegt að halda því fram að útgerðarmönnum hafi verið úthlutað veiðiheimildunum ókeypis. Einnig ber að hafa í huga að þegar kvótakerfið var tekið upp voru atvinnutæki útgerðar- manna sem slík í raun gerð verðlaus. Það hefði þó mátt bæta útgerðarmönnum á sanngjarnari hátt en þann sem viðhafður var. Ósanngjamt hefði verið að svipta útvegsmenn bótalaust áunnum atvinnuréttindum við úthlutunina 1983; spum- ingin snýst um það hvort réttlætanlegt hafi verið árið 1990 að veita þeim veiði- heimildir sem í reynd hafa jafngilt eignarrétti á íslandsmiðum. Þess vegna er brýnt að huga að eignarréttarrökunum.24 Ef við tökum Locke á orðinu liggur það engan veginn í augum uppi að út- gerðarmenn eignist þau náttúrugæði sem hér um ræðir. Þeir hafa ekki lagt fram það andlega og líkamlega atgervi sem sjómennirnir hafa „blandað“ við aflann með því að innbyrða hann og búa hann undir notkun og fiskverkafólkið með því að gera hann að verðmætri söluvöm. Að ekki sé minnst á þá staðreynd að ís- lenskir fiskimenn hafa um aldir lagt líf sitt í hættu við erfiðar aðstæður. Svo tala 23 John Locke: Ritgerð um ríkisvald. Atli Harðarson þýddi. Hið íslenska bókmenntafélag 1986, bls. 67-68. 24 Þessu hafnar Þorsteinn Gylfason í „Fiskur, eignir og réttlæti". Hann segir að aðrir hópar fólks en útvegsmenn eigi greinilega sams konar tilkall til gæðanna „í krafti áhuga síns á fiskveiðum“. En áhuginn er ekki nægileg ástæða fyrir veiðiheimildum. Menn geta verðskuldað veiðiheimildir, hvort sem þeir hafa áhuga á þeim eða ekki, hafi þeir unnið til þeirra. 80
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.