Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1999, Qupperneq 22

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1999, Qupperneq 22
Dómstóllinn lýsti það vera tilgang jafnréttistilskipunarinnar að gera virka í aðildarríkjunum meginregluna unr jafnrétti karla og kvenna að því er varðar hin ýmsu málefni, er snerta atvinnu, alveg sérstaklega að því er varðar starfskjör, þar á meðal skilyrði um brottvikningu úr starfi. í þessu skyni sé í 2. gr. tilskip- unarinnar slegið fastri meginreglunni um jafnrétti og takmörk hennar, en í 1. mgr. 5. gr. sé umfang reglunnar skilgreint í tengslum við starfskjör, þar á meðal skilyrðin um brottvikningu úr starfi, þess efnis, að körlum og konum séu tryggð sömu skilyrði án mismununar á grundvelli kynferðis. Samkvæmt 6. gr. tilskip- unarinnar sé aðildarríkjunum skylt að gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til þess að gera öllum einstaklingum, er telja á sér brotið með mismunun, kleift að fylgja fram kröfum sínum fyrir dómstólum. I slíkri skyldu felist, að þær ráðstaf- anir, sem gerðar eru, verða að vera nægilega árangursríkar til þess að ná fram markmiði tilskipunarinnar og vera þess þess eðlis, að viðkomandi einstaklingar geti með virkum hætti byggt á þeim rétt fyrir innanlandsdómstólum. Markmið- ið er að ná fram raunverulegu jafnrétti til tækifæra og verður því ekki náð, ef ekki eru fyrir hendi ráðstafanir til þess að koma aftur á jafnrétti (restore equa- lity), þegar þessa hefur ekki verið gætt. Þessar ráðstafanir verða að vera með þeim hætti, að þær tryggi raunverulega og virka dómstólavemd og hafi raun- veruleg varnaðaráhrif á vinnuveitanda. Þess háttar kröfur til ráðstafananna feli það óhjákvæmilega í sér, að hverju sinni verði að taka tillit til hinna sérstöku atvika hvers brots á meginreglunni um jafnrétti. Þegar um sé að ræða mismunun við brottvikningu úr starfi, er brjóti gegn 1. mgr. 5. gr. tilskipunarinnar, verði jafnréttisástandi ekki náð á nýjan leik nema með því annað hvort að setja þolanda mismunarinnar aftur í starfið, eða, sem annan kost, með því að veita fébætur fyrir fjártjón og annan skaða (loss and damage), sem valdið hefur verið. Þegar fébætur er sú leið, sem valin hefur verið til þess að ná framangreindu markmiði, verða þær að vera fullnægjandi að því leyti að þær verða að gera það mögulegt, að fjártjón og annar skaði, sem hlotizt hefur af brottvikningu á grundvelli mismununar verði að fullu bættur í samræmi við reglur innanlands- réttarins, sem við eiga. Þegar Evrópudómstóllinn hafði með þeim hætti, sem rakið hefur verið, gert grein fyrir grundvallarsjónarmiðum sínum varðandi túlkun jafnréttistilskip- unarinnar, þar á meðal sérstaklega túlkun 6. gr. hennar, svaraði hann þeim fyrir- spurnum, sem til hans hafði verið beint. Um fyrstu fyrirspumina sagði dómstóllinn, að sú aðferð að ákveða efri mörk þess efnis, sem um væri að ræða í málinu, gæti ekki, skilgreiningu samkvæmt, talizt rétt lögleiðing 6. gr. jafnréttistilskipunarinnar, þar sem með því móti væri fyrirfram takmörkuð fjárhæð skaðabóta við mörk, sem ekki væru endilega í samræmi við þá kröfu að tryggja raunverulegt jafnrétti til tækifæra með því að beita fullnægjandi bótum fyrir tjón og annan skaða, sem hlotizt hefði af mis- munun við brottvikningu úr starfi. Um fyrri hluta (a) annarar fyrirspumar varðandi mörk skaðabóta taldi dóm- stóllinn, að túlkun sín á 6. gr. tilskipunarinnar fæli í sér beint svar við henni. 88
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.