Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1999, Side 35

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1999, Side 35
Þegar fjallað er um hugtakið vanhæfni í bamavemdarlögum er samkvæmt ofangreindu ekki aðeins átt við þær aðstæður þegar foreldrar eru ófærir um að veita bami sínu ást og umhyggju, heldur einnig þau tilvik þegar foreldrar eru ófærir um að vemda bamið og hafa ekki getu til þess að meta hvenær og hvort bamið þarf á aðstoð eða hjálp að halda. Einnig tekur hugtakið til þess þegar foreldrar em vanhæfir til þess að veita bami sínu nauðsynlega örvun og hvatn- ingu, hafa ekki skilning á andlegum þörfum þess, eða þegar hreinlæti og matar- æði bama er stórlega ábótavant. 3.6 Almennt skilyrði í 2. mgr. 25. gr. laganna 12. mgr. 25. gr. laganna kemur fram að úrskurð um forsjársviptingu skuli því aðeins kveða upp að ekki sé unnt að beita öðmm aðgerðum til úrbóta sam- kvæmt 21. og 24. gr. eða slíkar aðgerðir hafi verið fullreyndar án nægilegs ár- angurs. Akvæði þetta felur í sér að ávallt skuli reyna að beita þeim úrræðum sem eru minnst íþyngjandi fyrir foreldra og ber það keim af meðalhófsreglu stjómsýslu- laga. I framkvæmd hérlendis hefur ákvæðið verið túlkað svo að stuðningsúr- ræði skuli ávallt reynd áður en til forsjársviptingar kemur. í Noregi hins vegar er ákvæðið ekki túlkað svo að bamaverndaryfirvöld skuli ávallt reyna stuðn- ingsúrræði áður en forsjársvipting er ákveðin.4 Bamavemdaryfirvöldum ber skylda til að grípa til aðgerða þegar þess er þörf, en barnavemdamefndum er mikill vandi á höndum þegar þær meta hvort skilyrði forsjársviptingar eru fyrir hendi. Þær standa ávallt frammi fyrir því mati hvort unnt sé að beita stuðningi í stað forsjársviptingar og hvort sá stuðningur sem veittur hefur verið hafi verið nægilegur. Hér þurfa nefndimar sem endranær að hafa í huga það grundvallarsjónarmið hvað sé þeim bömum sem í hlut eiga fyrir bestu. Þær þurfa að vega og meta hagsmuni bams af því að alast upp hjá foreldum sínum, sem geta þó ekki búið þeim viðunandi uppeldisskilyrði og hagsmuni þeirra af því að alast upp hjá fósturforeldram. Reynt er að leggja heildarmat á aðstæður bama, þannig að tekið er tillit til þess hvort foreldrar fái aðstoð við uppeldið frá fjölskyldu, vinum eða félagsmálayfirvöldum. Einnig er tekið tillit til þess hvort foreldrar em tilbúnir til að þiggja slíka hjálp eða færir um það. Við stuðningsaðgerðir verður að hafa í huga að aðstoð félagsmálayfir- valda em takmörk sett og einnig em takmörk fyrir því í hvaða mæli slík hjálp getur komið í stað forsjár foreldranna sjálfra. 4. SÖNNUNARMAT í FORSJÁRSVIPTINGARMÁLUM Það sem hér fer á eftir á við um sönnunarmat í dómsmálum um gildi forsjár- sviptingarúrskurðar en telja verður að bamavemdaryfirvöld leggi sömu sjón- armið til gmndvallar sönnunarmati í forsjársviptingarmálum og dómstólar gera samkvæmt ákvæðum laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. 4 Börresen, Pál B.: Bamevem og familevem, bls. 254. Oslo 1995. 101

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.