Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1999, Qupperneq 52

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1999, Qupperneq 52
hins vegar hluti EES-samningsins og er því eðlilegt að lög sem lögfesta meginmál samningsins séu skýrð svo að meginreglan um skaðabótaábyrgð ríkisins felist einnig í þeim. í fljótu bragði virðist tvennt í ofangreindri málsgrein gagnrýnivert. í fyrsta lagi hlýtur að minnsta kosti að teljast umdeilanlegt hvort regla um skaðabóta- skyldu aðildarríkja EES-samningsins eins og hún birtist í hinu ráðgefandi áliti dómstólsins feli í sér framsal á löggjafarvaldi. Engu að síður fullyrðir dómstóll- inn að svo sé ekki. Hægt er að færa fram sannfærandi röksemdir fyrir því að viðurkenning á reglu um skaðabótaskyldu aðildarríkja EES-samningsins feli ekki í sér framsal eða annars konar takmörkun á valdheimildum löggjafans sem fari út fyrir þau mörk sem íslensk stjómskipun leyfir. Engu að síður er nauðsynlegt að hafa í huga að regla af þessu tagi getur veitt þjóðréttarlegum skuldbindingum ákveðin bein áhrif að landsrétti enda þótt þær hafi ekki verið teknar þar upp. Sem dæmi má nefna að einstaklingur kann að öðlast rétt til skaðabóta úr hendi ríkisins af þeim sökum að hann nýtur ekki réttinda samkvæmt tilskipun við þær aðstæður að Alþingi hefur af ráðnum hug fellt viðkomandi réttindi úr íslenskri löggjöf. Mætti halda því fram að með þessu sé höggvið nærri 2. gr. stjómarskrár lýð- veldisins Islands nr. 33/1944 enda er svigrúm löggjafans til lagasetningar eða afnáms tiltekinna reglna úr löggjöf í raun (de facto) takmarkað af öðru en stjómarskrá. Á hinn bóginn er á það bent að ekki fæst séð að neitt standi í vegi fyrir heimild Alþingis til að festa í lög reglu sem mælir fyrir um skaðabóta- skyldu ríkisins vegna brota á skuldbindingum samkvæmt EES-samningum.8 Með sama hætti væri Alþingi vitaskuld heimilt að nema slíka reglu úr lögum. 8 Sjá til hliðsjónar 41. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 með síðari breyting- um. Einnig má til samanburðar geta dóms Hæstaréttar frá 18. júní 1998 í málinu nr. 418/1997: Is- lenska ríkið gegn Kristjáni Geirssyni. Forsaga málsins er sú að dómarafulltrúi, ásamt tveimur með- dómsmönnum, hafði leyst úr réttarágreiningi KG og annars aðila (Faghúsa hf.) fyrir héraðsdómi. Fjárkröfur KG í málinu höfðu ekki verið teknar til greina að fullu og hafði hann af þeim sökum áfrýjað málinu til Hæstaréttar. Með dómi réttarins 7. júní 1995 (H 1995 1613) var hinn áfrýjaði dómur felldur úr gildi, og öll meðferð málsins fyrir héraðsdómi, þar sem staða dómarafulltrúa, eins og henni var þá fyrir komið, var ekki talin uppfylla grunnreglur stjómarskrár um sjálfstæði dóms- valdsins. Var málinu vísað heim í hérað til nýrrar meðferðar en málskostnaður í héraði og fyrir Hæstarétti felldur niður. Við meðferð málsins í héraði öðru sinni voru fjárkröfur KG að fullu teknar til greina. í kjölfar þeirrar niðurstöðu höfðaði KG mál á hendur íslenska ríkinu og krafðist þess að fá bætt það tjón sem hann hafð orðið fyrir við það að dómarafulltrúi kvað upp dóm í máli hans í héraði með þeim afleiðingum að meðferð málsins var ómerkt. Hæstiréttur tók kröfur KG um skaða- bætur til greina með eftirfarandi rökstðningi: „Þótt meðferð Héraðsdóms Reykjavíkur á málinu, að því er varðar úthlutun til dómarafulltrúa og umfjöllun hans um málið, haft verið í samræmi við það, sem tíðkast hafði, var engu að síður brotinn réttur á [KG] við meðferð þessa með þeim afleiðingum að málskot hans til Hæstaréttar ónýttist. Við úrlausn þess, hvort [KG] eigi rétt á því að fá bættan þann kostnað, sem sannanlega megi rekja til þessa verður að líta til þess að hér var um brot á mikil- vægum grundvallarréttindum að ræða, sem meðal annars er kveðið á um í Mannréttindasáttmála Evrópu, er lögtekinn var hér á landi með lögum nr. 62/1994. Þykir því lagagrundvöllur vera til þess að telja áfrýjanda ábyrgan fyrir þessu tjóni [KG]“. 118
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.