Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1999, Qupperneq 71

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1999, Qupperneq 71
túlkun EB-réttar þegar einstökum útgáfum ber ekki saman hefur Evrópudóm- stóllinn lagt áherslu á að tillit beri að taka til allra tungumálaútgáfa. Ákvæði skuli skýrð eftir tilgangi þeirra og í samhengi við það regluverk sem þær eru hluti af.71 Samkvæmt þessu kann að skipta máli að tilgangur íslenska ríkisins með tilgreiningu undanþægra hópa í viðaukanum var sjálfsagt sá að koma í veg fyrir að gera þyrfti breytingar á íslenskum lögum. Má ætla að íslenska ríkið hafi í raun ætlað að undanþiggja systkin eigenda gjaldþrota félaga frá kröfum sam- kvæmt tilskipuninni enda hefðu lög nr. 53/1993 þá óvírætt verið í samræmi við ákvæði tilskipunar nr. 89/1987 að þessu leytinu til. Þá er þess að geta að samn- ingaviðræður EES-samningsins fóru fram á ensku. Með öðrum orðum er ís- lenska útgáfa viðaukans þýðing á enskri útgáfu hans. Ensku útgáfu viðaukans má hins vegar túlka með þeim hætti að þar falli undir systkin. Samkvæmt þessu sýnist sem túlkun á h-lið viðaukans á þann veg að undir undanþáguna falli systkin eigenda verulegs hlutafjár í gjaldþrota fyrirtæki, þrátt fyrir orðalag ís- lensku útgáfunnar, hafi í raun verið frambærilegur skýringarkostur. I þriðja lagi getur það ótvírætt haft þýðingu að ekki voru fyrir hendi leið- beinandi úrlausnir EFTA-dómstólsins eða Evrópudómstólsins um túlkun á þeim atriðum sem getið hefur verið hér að ofan og á reyndi í málinu. Á þetta sjónar- mið hefur Evrópudómstóllinn lagt áherslu í úrlausnum sínum. Ábyrgðasjóður launa hafði því ekki við slrk fordæmi að styðjast þegar sjóðurinn hafnaði kröfu Erlu Maríu um greiðslu. í fjórða lagi skal þess getið að ekki er víst að túlkun íslenska ríkisins stríði beinlínis gegn markmiði tilskipunar nr. 80/987 enda gerir tilskipunin sjálf ráð fyrir því að aðildarríkin geti gripið til ráðstafana til að forðast misnotkun. í þessu sambandi er til þess að líta að sjálfsagt hefði verið heimilt að undanþiggja „systkin“ frá því að njóta réttinda samkvæmt ákvæðum tilskipunarinnar með sama hætti og heimilt var að gera undanþágur vegna „ættingja í beinan legg“ með því að geta þess sérstaklega í h-lið viðaukans. Að öllu þessu virtu er niðurstaðan sú að vafasamt er að vanefnd íslenska ríkisins í máli Erlu Maríu Sveinbjömsdóttur sé nægilega alvarleg til að uppfyllt séu skilyrði bótaábyrgðar á grundvelli meginreglu EES-samningsins um skaða- bótaskyldu samningsaðila. Virðist sem hér geti fyllilega átt við þau sjónarmið er Evrópudómstóllin byggði á í máli British Telecommunications og áður er vikið að.72 HEIMILDIR: Amesen, Finn: “Om statens erstatningsansvar ved brudd pá E0S-avtalen“. (1997) Tidsskrift for Rettsvitenskap, 2. tbl., bls. 633-685. 71 Mál 29/69 Erich Stauder [1969] ECR 419, 3. mgr., mál 30/77 Regina [1977] ECR 1999, 14. mgr., og mál C-449/93 RockfonAS [1995] ECR 1-4291, 28. mgr. Sjá einnig Stefán Má Stefánsson, bls. 68, og Davíð Þór Björgvinsson: Lögskýringar (fjölrit). Reykjavík 1995, bls. 168-172. 72 Sjá kafla 4.3. Þess ber að minnast að Erla María Sveinbjömsdóttir hefur í málatilbúnaði sínum gegn íslenska ríkinu einnig byggt bótakröfu sína á almennu skaðabótareglunni. 137
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.