Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1999, Page 79

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1999, Page 79
seta í gerðardómum. Hópurinn sem við hittum þama talaði allur ensku, eina konan í hópnum hafði verið í eitt ár í starfi á lögmannsstofu í New York og nokkrir hinna höfðu einnig starfað á lögfræðistofum á Vesturlöndum eða Hong Kong um tíma. Vinnudagurinn er langur, frá 8-9 á morgnana og til 8-9 á kvöld- in. Stundum er unnið á laugardögum. Þegar rætt var um fjölskyldulífið kom í ljós að eina bamið sem fólkið má eignast er annað hvort á heimavistarskóla í Beijing yfir vinnuvikuna eða því komið fyrir úti í sveit hjá afa og ömmu. Helg- amar eru svo notaðar til samvista. Eftir hádegi var svo haldið í skoðunarferð í Lama hofið í Beijing og fylgst með bænahaldi Kínverja þar. Frásagnir af Dalai Lama eða ástandinu í Tíbet stemmdu ekki alveg við það sem okkur er sagt á Vesturlöndum. Á föstudeginum var haldið að Kínamúmum. Eins og menn vita teygir mannvirkið sig um stóran hluta Kína, samtals um 6000 kílómetra og var byrjað að reisa múrinn á sjöundu öld f. Kr. Þar sem við komum að Kínamúrnum, Mutianyu, var hann mjög brattur, en hægt er að velja milli nokkurra staða til uppgöngu. Markið var sett hátt, klífa skyldi upp á topp á fjallinu eftir múmum. Þetta minnti á Esjugöngu, bara upp tröppur. Upp komst stór hluti hópsins eftir mikið erfiði. Ekki var mikið um erlenda ferðamenn á múmum, en Kínverjar fjölmennir. Sem betur fer var ekki mjög heitt þennan dag, svo ferðin upp varð fólki ekki um megn. Þegar upp var komið hafði hópur kínverskra krakka komið sér fyrir á endastöðinni með „ghettóblaster“ og slegið upp diskóteki með dynjandi kínverskri popptónlist. Andstæðumar voru slá- andi. Eftir hádegi var Hæstiréttur kín- verska Alþýðulýðveldisins heimsóttur og dómsalur skoðaður. Þar hittum við einn hæstaréttardómara sem upplýsti okkur um störf dómsins. Ekki var laust við að þreyta væri farin að segja til sín á þessu stigi hjá hópnum, en athygli vakti minnisleysi dómarans þegar hann var spurður um fjölda líflátsdóma hjá dóminum. Hann sagðist ekki muna þetta nákvæmlega, enda væri þessi deild ekki á sínu ábyrgðarsviði. Þar með var það afgreitt. Við fengum jú líka skýringar á skilorðsbundnu lífláts- dómunum. Mönnum er að sjálfsögðu haldið í fangelsi eftir að hafa verið Greinarhöfundur á Kínamúrnum. í bak- grunni má sjá fyrrum formann Lög- mannafélags Islands. 145

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.