Ægir - 01.08.1996, Side 14
w
Islenska kvótakerfið það
besta í heiminum
Brynjólfur Bjarnason forstjóri Granda
Á því fiskiveiðiári sem senn er liðið
hafði Grandi hf. í Reykjavík 6,12%
hlutdeild í botnfiskkvóta á íslands-
miðum og var það stærsti hlutur
einstaks fyrirtækis í kvótanum.
Grandi gerir út 8 togara, rekur
frystihús og veitir um 450 manns
atvinnu. Dótturfyrirtæki Granda,
Faxamjöl, er að stækka loðnuverk-
smiðju sína. Grandi á 23,1% hlut í
Þormóði ramma hf. á Siglufirði,
25% hlut í Árnesi hf. í Þorlákshöfn
og 40% í Bakkavör, sem vinnur úr
hrognum. Að auki á Grandi 19%
hlut í Friosur S.A. í Chile og ásamt
Þormóði ramma á Grandi hlut í
Pesquera Siglo sem er rækjuútgerð
í Mexíkó.
Grandi er risi í íslensku atvinnulífi,
26. stærsta fyrirtækið yfir heildina og
stærst sjávarútvegsfyrirtækja og velti
rúmlega 3,8 milljörðum' króna árið
1994. Fyrstu sex mánuði þessa árs var
215 milljóna króna hagnaður af rekstri
fyrirtækisins og þegar Brynjólfur Bjarna-
son forstjóri ræddi við Ægi lá beinast við
að spyrja. Er þetta nægur hagnaður?
„Ég kalla þetta viðunandi afkomu,"
sagði Brynjólfur. „Þetta má ekki minna
vera miðað við það fjármagn sem er
bundið í fyrirtækinu."
Er þetta í samræmi við skilgreind
markmið?
„Þetta var mjög svipað og áætlanir
okkar gerðu ráð fyrir. Reyndar urðu fjár-
magnsgjöld heldur minni en við ætluð-
um og þáttur útgerðar í hagnaði heldur
minni og þessir tveir þættir vógu hvor
annan upp.
Hér hefur lengi verið stunduð áætl-
anagerð um afkomu og hagnað og flest
sem lýtur að rekstrinum. Þessu byrjuð-
um við á fyrir 10 árum og ég minnist
þess að þá nutum við aðstoðar ráðgjafar-
fyrirtækis og einhvers staðar spurðist
það út að við værum að áætla aflann.
Það hringdu að minnsta kosti tveir skip-
stjórar inn og spurðu hvort þetta væri
1 4 ÆGIR