Ægir - 01.08.1996, Síða 34
Tæknideild Fiskifélags íslands
Þann 1. sept. sl. kom nýr skuttogari Helga RE 49 til heima-
hafnar íReykjavík. Skipið er smíðað hjá Slipen Mekanisk Verk-
sted A.S. í Sandnessjöen Noregi smíðanúmer 57 og er skipið
hannað hjá Skipsteknisk A.S. í Alesund Noregi. Helga RE er
fyrsta nýsmíði fyrir íslendinga frá Slipen Mek. Verkst. en Guð-
munda Torfadóttir VE (skipaskrárnúmer 2191), sem kom not-
uð til landsins, var smíðuð hjá þessari stöð. Guðmunda Torfa-
dóttir hefur verið seld úr landi.
Skipið verðurgert út á rœkjuveiðar með fullvinnslu um borð.
Þrjár togvindur eru í skipinu og verður veitt með tveimur troll-
um þar sem því verður við komið.
Helga RE 49 kemur í stað Helgu IIRE 373 (skipaskrárnúm-
er 1903), fjölveiðiskips sem var smíðað fyrir útgerðina 1988,
einnig hverfa úr rekstri önnur skip og bátar. Helga II RE 373
var seld til Samherja hf. og heitir nú Þorsteinn EA 810.
Fyrsta skip útgerðarinnar, og bar nafnið Helga RE 49, var
sœnskur eikarbátur smíðaður 1947 og var með 260 hestafla
Polar aðalvél. Nýja Helga RE 49 er með 4.590 hestafla
Wartsild aðalvél. í nýju Helgu RE er Caterpillar hjálparvél
(Ijósavél) 1.033 hestöfl. Einnig er 250 hestafla hapmrljósavél í
skipinu frá Caterpillar.
Eigandi Helgu RE 49 er Ingimundur hf. í Reykjavík. Ingi-
mundur hf. var stofnað í júlí 1947 og verður því fyrirtœkið 50
ára á ncesta ári. Skipstjórar á Helgu RE eru Viðar Benedikts-
son og Geir Garðarsson og yfirvélstjóri er Björgvin Jónasson.
Framkvœmdastjóri útgerðar er Ármann Ármannsson.
Almenn lýsing
Almennt: Skipið er smíðað úr stáli samkvæmt reglu'm og
undir eftirliti Det Norske Veritas í flokki *1A1, Stern Trawler,
ICE 1C, *MV, skrokkur skipsins er smíðaður í flokki Ice 1A*.
Skipið er skuttogari með tveimur þilförum milli stafna, peru-
stefni, skutrennu upp á efra þilfar, hvalbak á tveimur hæðum
á fremri hluta efra þilfars, íbúðahæð ásamt brú á reisn aftantil
á efra hvalbaksþilfari.
Rými undir neðra þilfari: Fjögur vatnsþétt þverskipsþil skipta
skipinu í eftirtalin rými, talið framan frá: Stafnhylki fyrir sjó-
kjölfestu, hliöarskrúfurými með brennsluolíugeyma í síðum,
fiskilest með botngeymum fyrir brennsluolíu, vélarúm með
vélgæsluklefa fremst b.b.-megin og botngeymum fyrir fersk-
vatn o.fl. og aftast skutgeyma fyrir brennsluolíu.
Neðra þilfar: Fremst á neðra þilfari er stafnhylki fyrir sjó-
kjölfestu, keðjukassar og þar fyrir aftan milliþilfarlest (um-
búðalest), þá vinnsluþilfar með fiskmóttöku aftast og
ferskvatnsgeymum þar undir, aftan við fiskmóttöku er stýr-
isvélarúm. B.b.-megin við fiskmóttöku og stýrisvélarúm er
vélareisn, ketil- og hjálparvélarúm. S.b.-megin er vélareisn,
set- og daggeymar og verkstæði. B.b.-megin á vinnsluþiifari
er stigahús sem tengir saman efra þilfar, vinnslurými og vél-
gæsluklefa.
Efra þilfar: Fremst á efra þilfari eru sex grandaravindur.
Síðuhús b.b,- og s.b.-megin liggja aftur, næstum samfelld. í
b.b.-síðuhúsi eru íbúöir með stakka- og hlífðarfatageymslu og
salernisklefa aftarlega, þar fyrir framan íbúðakiefar, salernis-
og snyrtiklefar. Fremst s.b. megin í síöuhúsi er dælurými fyr-
34 ÆGIR