Ægir - 01.08.1996, Side 38
ir vindur, skolpgeymir og tilheyrandi búnaður og veiðarfæra-
geymsla. Aftan við veiðarfærageymslu er C02 klefi, dekk- og
suðuverkstæði. B.b.-megin aftan við stakkageymslu er dælu-
rými fyrir vindur, ketilrými og vélarúmsstigahús. Afturmastur
gengur niður í þilfarshús b.b.- og s.b.-megin. Aftast er toggálgi
með ísgálgum og blökkum fyrir þrjá togvíra, hlerasæti að ut-
anverðu og pallur á milli toggálga og afturmasturs. Framan
við skutrennu er tvískipt fisklúga og þar fyrir framan togþil-
far, með sex bobbingarennum, og ná fram að grandaravind-
um. Hægt er að hafa þrjár vörpur undirslegnar og tilbúnar til
veiöa. Togþilfarið er lokað að framan.
Mesta lengd........................................ 60,40 m
Lengd milli lóðlína................................ 53,40 m
Breydd (mótuð)..................................... 13,00 m
Dýpt að efra þilfari................................ 8,30 m
Dýpt að neðra þilfari............................... 5,80 m
Eiginþyngd.......................................... 1819 t
Lestarrými (undirlest)............................. 946,7 m3
Lestarrými (milliþilfarslest)................... 211,5 m3
Brennsluolíugeymar (svartolía).................... 412,1 m3
Brennsluolíugeymar (gasolía)....................... 106,8 m3
Ferskvatnsgeymar.................................... 62,8 m3
Sjógeymar (stafnhylki).............................. 46,3 m3
Andveltigeymir (svartolía).......................... 61,2 m3
Brúttótonnatala.................................... 1951 Bt
Ganghraði (heimsigling 80% afl)..................... 12,5 hn
Skipaskrárnúmer..................................... 2249
Neöra hvalbaksþilfar: Neðra hvalbaksþilfar er heilt frá stafni
og aftur fyrir miðju, þar greinist þilfarið í tvennt og liggur
með síðum á þilfarshúsum aftur að afturmastri.
Á neðra hvalbaksþilfari em íbúðir, borðsalur, setustofa, eld-
hús, íþróttaaðstaða, geymslur, þvottahús, sjúkraklefi o.fl.
Efra hvalbaksrými: Framan til á efra hvalbaksþilfari er akker-
isvindurými. Þar fyrir aftan kemur íbúðarými með andvelti-
geymi og þar ofan á kemur stýrishús. Aftan við stýrishús er
hífingamastur og á brúarþaki er ljósa- og ratsjármastur.
Vélbúnaður
Framdrifs- og orkuframleiöslukerfi: Aðalvél skipsins er
Wártsilá Vasa, níu strokka fjórgengisvél með forþjöppu og eft-
irkælingu, vélin tengist niðurfærslugír, með innbyggðri kúpp-
lingu, og skrúfubúnaði frá Wártsilá Propulsion.
Á niðurfærslugír er eitt aflúttak 1:1,615 og við tengist rið-
straumsrafall frá Leroy Somer 1.800 KW (2.250kVA), 3 x
440V, 60 Hz. í skipinu eru tvær hjálparvéiar frá Caterpillar
staðsettar í hjálparvélarými á milliþilfari. Gerð stærri vélar er
3508 DITA, átta strokka fjórgengisvél með forþjöppu og eftir-
kælingu 760 KW (1.033 hö) við 1.800 sn/mín. Vélin knýr rið-
straumsrafala 715 KW (893kVA), 3 x 440V, 60 Hz.
Minni vélin, hafnarljósavél, er Caterpillar gerð 3606 T, sex
strokka fjórgengisvél, 184 KW (250 hö) með 170 KW (212,5
kVA) rafala.
Tæknilegar upplýsingar
Gerð vélar .. 9R32D
Afköst .. 3.375 KW (4.590 hö)
Snúningshraði 750 sn/mín
Eyðslustuðull .. 202,1 gr/kw.klst (148,6 gr/ha.klst)
Seigja svartolía .. 80 cSt 50° C
Gerð niðurfærslugír .. SCV 750-P530
Niðurgírun .. 4,895 : 1
Gerð skrúfu .. PR90/4ID
Þvermál skrúfu .. 3.600 mm.
Blaðafjöldi/skrúfuhringur 4/fastur
Snúningshraði skrúfu 153,2sn/mín
í bógskrúfurými er neyðarbrunadæla með Hatz eins
strokka fjórgengis dieselvél.
Fyrir upphitun íbúða, svartolíu o.fl. er afgasketill frá Pyro
búinn olíukyndingu. Vinnuþrýstingur og hitastig, 3 bar,
85°C.
Stýrisbúnaöur: Stýrisvél er rafstýrð og vökvaknúin Ulstein-
Tenfjord af gerð 12M 220 og tengist flipastýri frá Becker gerð
S-A 4.
Rafdrifin hliðarskrúfa er að framanverðu frá Brunnvoll
(skiptiskrúfa).
Tæknilegar upplýsingar
Gerð FU 45 LTC-1375
Þvermál/blaðfjöld 1.375 mm / 4
Niðurgírun 4,13:1
Snúningshraði.... 430 sn./ min.
Afköst mótors 350 kw (476 hö)
Vélakerfi dieselvéla: Þrjár skilvindur frá Alfa Laval eru fyrir
brennslu- og smurolíukerfin. Gerð MMPX 304 SPG fyrir
svartolíu, gerð LOPX 705 SFD fyrir smurolíu og gerð MMB
203 S fyrir gasolíu. Austursskilja er frá Helisep, afköst 10001/
klst.
Ræsiloftsþjöppur eru tvær frá Sperre af gerð HL 2/90 afköst
38 m3 klst við 30 bar þrýsting. Fyrir vélarúm og loftnotkun
véla er einn rafdrifinn blásari frá Nordvest Miljo, afköst
45.000 m3 klst. Fyrir hjálparvélarými o.fl. rými eru blásarar
frá Nordvest Miljo.
Svartolía er upphituð með gufu/vatni frá afgaskatli, set- og
daggeymar eru með upphitun í botni geyma. Botngeymar eru
ekki útbúnir með upphitunarkerfi. Sjálfvirkur seigjumælir
heldur svartolíu við stöðuga seigju 16 cSt 50°C.
Rafkerfi: Rafkerfi skipsins er 3 x 440V, 60 Hz fyrir mótora
og stærri notendur og 230V, 60 Hz fyrir lýsingu og til al-
mennra nota í íbúðum. Fyrir 230V kerfið eru tveir 50kVA
spennar frá Siemens. Við 230V rafkerfiö, fyrir tæki í brú, kem-
ur tíöni og spennujafnari frá AG-Energi, 20KW. Hjálparvél-
arafall er með skammtíma samfösun við ásrafala. Skipið er
með 80A, 3 x 380V / 440V landtengingu.
38 ÆGIR