Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.12.1997, Qupperneq 29

Ægir - 01.12.1997, Qupperneq 29
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI gætu staðið að framleiðslunni. Ef fjórar fiskvinnslur ætla sér að frysta ca. 5000 tonn af Japansloðnu hver geta þær sameinast um að byggja eina köfnunarefnisverksmiðju sem kostar um 400 miljónir króna. Lítið tankskip sér svo um að koma köfnunarefninu í stóra geyma nálægt vinnslustöðv- unum og því má reikna með að hvert fyrirtæki þurfi að leggja í ca. 130 milljóna króna fjárfestingu til að fá í sinn hlut um 7000 tonn af köfnunarefni árlega. Geym- arnir á hverjum stað kosta ca. 160 miljónir króna og vegna þess að köfnunarefnið er geymt í þeim við um 195 gráðu frost þurfa þeir að vera tvöfaldir. Innra byrðið þarf að vera úr áli eða ryðfrýju stáli til að hrökkva ekki sundur vegna kuldans og auk þess þurfa tankarnir mikla einangrun svo köfn- unarefnið sjóði ekki allt saman vegna hitans frá um- hverfinu. Köfnunarefnið er við suðumark í tönkunum, en það er ekki undir þrýst- ingi. Reikna má með að tæp 2000 tonn sjóði af tankinum á ári, og því stendur hvert vinnsluhús með fullan 5000 tonna tank þegar frystiver- tíðin hefst. Með þessu er búið að hafa köfnunarefnis- verksmiðjuna og tankskipið í stöðugum rekstri allt árið, og hvert fyrirtæki á uppsafnaða frystigetu fyrir 5000 tonn af loðnu um miðjan febrúar. Þúsund tonna frystigeta á sólarhring í hverri vinnslu Hægt er að smíða mjög ódýra lausfrysta sem nota köfnunarefni og ástæðan liggur einkum í því að engin þörf er á þjöppum, varmaskiptum eða öðrum venjulegum tækjabúnaði. Það hve loðnan er smár fiskur eykur einnig frystihraðann, og með ca. 30 milljóna króna lausfrysti er hægt að frysta 2000 tonn af loðnu á sólarhring án þess að nota nema fáeina tugi kílówatta í rafafli. Sambærileg afkastageta í plötufryst- um myndi kosta vel á annan milljarð Lopapeysur - vettlingar ullarsokkar - grifflur Veljum íslenslct QP k% H ANDPRJON ASAMBAND ISLANDS Skólavörðustíg 19 101 Reykjavík Sími: 552 1890 Fax: 552 1912 ÆCm 29

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.