Ægir

Volume

Ægir - 01.12.1997, Page 35

Ægir - 01.12.1997, Page 35
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI Benedikt Alfonsson, skólastjóri Siglinga- skólans. réttinda heyrir undir menntamála- ráðuneytið og í kennsluskrá fyrir 30 tonna réttindanám er áskilið að kennslustundir skuli vera 123. „Þegar um er að ræða kvöldnámskeið þá eru þetta níu vikur og kennt tvisvar í viku. En ég hef líka verið með námskeið á daginn en þá ljúka menn því á 12 dögum. Á 30 tonna námskeiðunum fær fólk innsýn í marga hiuti sem tengjast sjómennsku. Fyrst og fremst er það siglingafræðin, siglingareglur, fræðsla um stöðugleika skipa, siglinga- tæki, fjarskipti, vélfræði, skyndihjálp, fræðsla um veður, björgunartæki og neyðarbúnað. Þetta námsefni er því mjög gagnlegt fyrir fólk, enda koma margir sem ekki eru beinlínis á leið- inni út á sjó. En miðað við áhugann á 30 tonna réttindanámskeiðunum af mönnum á aldrinum 30-40 ára þá er enn mikill áhugi á smábátaútgerðinni. Menn meta það greinilega svo að þetta sé, þrátt fyrir allt, ekki vonlaus atvinnuvegur," segir Benedikt. Til viðbótar 30 tonna réttindanám- skeiðunum býður skólinn upp á nám- skeið í hafsiglingum á skútum, nám- skeið til úthafssiglinga og skútusigl- inganámskeið. A námskeiði hjá Siglingaskólanum: Greinilegur áhugi enn á smábátasj ómennskunni - segir BenediktAlfonsson, skólastjóri Htngað keinur á námskeið bœði fólk sem er að ná sér í réttindi í atvinnuskyni, fólk sem cetlar sér að ná í nteiri réttindi og fara t.d. í sigl- ingar á skútum og síðan fólk sem hreinlega vill ná sér í réttindi af áhuga," segir Benedikt Alfonsson skólastjóri hjá Siglingaskólanum í Reykjavík en skólinn er meðal þeirra sem bjóða upp á réttindanámskeið í siglingum. Ekki er vafamál að líkt og með flest annað nám þá eru námskeið í sigling- um mjög gagnleg og kennski ekki bara fyrir þá sem hyggja á sjómennsku sem atvinnu því að á námskeiðunum er fræðsla um marga gagnlega þætti. „Námskeiðið til 30 tonna réttinda nær yfir smábátaútgerðina og er skyldunámskeið samkvæmt lögum fyrir stjórnendur smábáta. Ætli menn sér að fara að stunda smábátaútgerð og vera sjálfir skipstjórar þá þarf til viðbótar að fá atvinnuréttindi en það skírteini er veitt gegn prófskírteini úr 30 tonna námskeiði til viðbótar augn- vottorði og vottorði um 18 mánaða siglingatíma," segir Benedikt en sigl- ingatíma geta menn fengið með því að hafa verið á sjó í þennan tíma, hvort heldur er á smábát eða stærri skipum. -Er það fólk sem er að koma til námskeiðsins hjá þér að koma úr sjó- mennsku og ætlar sér í eigin útgerð? „Mér sýnist að það sé um þriðjung- ur sem leitar hingað sem hefur sjó- mennskuna sem atvinnu en hitt er „hobbý-fólk"," segir Benedikt. Kennsla á námskeiðum til 30 tonna Miðað við áhuga á námskeiðum til 30 tonna réttinda þá eru margir sem Itafa hug á smábátaútgerð. Reynslan sýnir líka að fjölmargir afla sér þessara réttinda líka af hreinum áhuga fyrir sjómennsku og siglingum. Myndin er tekin á námskeiði til 30 tonna réttinda. Myndir: Páhni Guðmundsson ÆGIIR 35

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.