Ægir - 01.03.1998, Qupperneq 29
(Xækni og fiskvinnsla
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Hörður segir þetta verkefni hafa í
raun verið klæðskerasaumuð lausn á
fyrirspurn sem Frosti hf. hafi sett fram
og einmitt þetta verkefni sé gott dæmi
um þann ávinning sem fyrirtæki geti
haft af samstarfi.
„Ég las eitt sinn þá setningu í
bók að allan ávinning sem hægt
væri að ná með samruna
fyrirtækja mætti einnig ná með
samstarfi. Góð samvinna
öflugra fyrirtækja skilar oft
meiru og reynsla okkar af svona
samstarfi um lausn verkefna er
mjög góð. Við fögnum því
verkefnum af þessu tagi og þetta
ört vaxandi fyrirtæki, 3xStál,
hefur reynst okkur góður
samstarfsaðili," segir Hörður.
Flokkunin mikilvæg til að
hámarksnýta hráefnið
Nýverið setti Póls hf. upp samvalsbún-
að hjá Útgerðarfélagi Akureyringa hf.
og slíkan búnað frá fyrirtækinu er að
finna hjá mörgum öðrum fiskvinnslu-
fyrirtækjum hér á landi. Búnaðurinn
nefnist Samval 7 og með honum fer
fram sjálfvirk vigtun í pakkningar og
hægt er að nota hann fyrir allar teg-
undir hráefnis. Ekki hvað síst er þessi
búnaður notadrjúgur í þeirri bita og
fullvinnslu sem mörg fyrirtæki eru að
fara út í eða eru byrjuð á. Hjá Snæfelli
hf. í Hrísey er til að mynda
fullkomnasta og afkastamesta samvals-
samstæðan sem Póls hf. hefur sett upp
hér á landi.
Auk þessa býður Póls hf. flokkara
sem byggja á áralangri reynslu fyrir-
tækisins í vigtun og meðferð á fiski.
Búnaðurinn hentar fyrir jafnt heilan
fisk sem flök og nýtist fyrir frystan
fisk, ferskan eða saltaðan.
Flokkunarbúnaður frá Póls hf. er
hjá íshúsfélagi ísafjarðar og þar er
hann notaður til að flokka hráefnið
áður en það er sent inn í vinnsluna.
Þetta segir Gunnar að fyrirtæki muni
gera í vaxandi mæli enda hafi for-
flokkunin mikið að segja um nýtingu
á hráefninu - það að hráefnið fái ná-
kvæmlega rétta meðferð og nýtist
best. Gunnar segir ekki fjarlægt
að flokkunarbúnaður mun í æ
ríkari mæli verða um borð í ís-
lenskum fiskiskipum þannig að
nákvæm forflokkun fyrir fram-
haldsmeðferð hefjist strax um
borð.
íslensk fiskvinnsla
verður að halda vöku sinni
Gunnar segir umhverfi Póls hf.
heima á ísafirði hafa miklu
skipt um velgengni fyrirtækis-
ins. Fiskvinnslufyrirtækin á staðnum
hafi verið viljug til samstarfs á þróun-
arstigi búnaðar frá Póls og við þau
hefur fyrirtækið átt mjög náið og gott
samstarf.
„Það er ekki spurning að fiskvinnsl-
an hér á landi er mjög framarlega í
tæknivæðingu en samt sem áður verða
menn að vera mjög vel vakandi og
fylgjast með þróuninni. Hráefnisverð-
ið í fiskvinnslu er stór þáttur í
rekstrarkostnaði og þess vegna verður
að nást hámarksnýting út úr hráefn-
inu. Liður í þeirri viðleitni er nákvæm
forflokkun og vigtun þannig að úr-
vinnsla hráefnisins verði nákvæmlega
rétt og sem hagstæðust," segir Gunnar.
Stiga skref út
á hlutabréfamarkaðinn
Póls hf. er hlutafélag í eigu margra að-
ila en stærstu hluti eiga Hörður Ing-
ólfsson, Örn Ingólfsson og Ingólfur
Eggertsson. Fyrirtækið var skráð á
Opna tilboðsmarkaðinum á síðasta ári
og stefnir inn á Verðbréfaþing íslands.
Meginhluti starfseminnar er á ísafirði
en söludeild með þremur starfsmönn-
um er í Reykjavík og sér hún um sölu-
málin og samskiptin við erlenda og
innlenda umboðs- og samstarfsaðila
Póls hf. sem er að finna víða um heim.
Búnaðinum fylgt úr hlaði hjá ÚA. Gunnar Sigmundsson, framleiðslustjóri Póls (t.h.j, og
með honum er fónas Ágústsson, framkvœmdastjóri Eltaks, sem er samstarfsaðili Póls á
íslandi.
„Fiskvinnslan hér á landi er mjög
framarlega í tœknivœðingu
en samt sem áður verða menn
að vera mjög vel vakandi og
fylgjast með þróuninni."
ÆGAIU 29