Ægir - 01.03.1998, Qupperneq 40
Smábátaútgerðin
getur skapað
mörg störf
- segir Birgir Ævarsson hjá Rafbjörgu, heild- og
smásöluverslun með veiðarfœri smábáta
Birgir Ævarsson segir engan vafa leika á að hægt sé að fjölga vemlega störfnm ef
hlutdeild smábáta í veiðum verði aukin.
Hljóðið í smábátasjómönnum er
yfirJeitt gott en þeir eru fyrst og
fremst þreyttir á sífelldum breyting-
um á lögum um veiðar smábáta. Það
liefur verið erfitt fyrir þessa menn að
vita í raun aldrei hvernig fyrirkomu-
lagið verði á nœsta ári,"segir Birgir
Ævarsson, eigandi veiðaifceraversl-
unarinnar Rafbjargar í Reykjavík.
Rafbjörg Itefur um árabil verið eitt af
dyggustu þjónustufyrirtœkjum smá-
bátasjómanna, flutt inn og selt veið-
arfœri og búnað fyrir handfœrasjó-
menn, auk þess sem Rafbjörg er þekkt
fyrir RB krókana sem margir nota.
Rafbjörg reið á vaðið hér á landi
með samsetningu á svokölluðum skak-
krók, sem notið hefur mikilla vin-
sælda handfæraveiðimanna. Birgir
valdi að fela Bergiðjunni, vernduðum
vinnustað í Reykjavík, að annast sam-
setningu á RB krókunum og hann seg-
ist mjög ánægður með samstarfið við
Bergiðjuna. „Þeirra vinna felst í
samsetningu á króknum sem er mikil
handavinna og mjög vandað til
hennar hjá Bergiðjunni," segir Birgir.
„Rafbjörg hóf starfsemi sína árið
1987 og þá með sölu á sænskum
tölvuvindum frá Beletronik og þær hef
ég selt fram til dagsins í dag. Við höf-
um líka verið í bátarafmagni og ýms-
um rafmagnsviðgerðum tengdum bát-
um en á síðari árurn hefur starfsemin
nær einvörðungu snúist um veiðarfær-
in, enda nóg að gera á því sviði," segir
Birgir.
Atvinnuskapandi útgerð
Hann segist hafa mikinn skilning á
því sjónarmiði smábátasjómanna að
fremur beri að auka hlutdeild smærri
bátanna en draga úr henni. Veiðar
smábátanna skili einfaldlega mörgum
störfum og það skipti þjóðfélagið máli.
„Menn tala mikið um mikilvægi
þess að setja upp verksmiðjur sem
kannski skila ekki nema 100 störfum á
meðan ekki þyrfti að auka hlutdeild
smábáta verulega til að stórauka fjölda
starfa í kringum þá útgerð. Þetta er at-
vinnuskapandi grein sem fer vel með
hráefnið og það er því allt sem mælir
með þessum veiðiskap," segir Birgir.
Blýsökkurnar á útleið
Breytingar verða ekki verulegar frá
einu ári til annars í búnaði og veiðar-
færum fyrir smábáta. Birgir segir vind-
urnar taka sífelldum breytingum og
framförum en veiðarfærin eru nokkuð
hefðbundin. Blýsökkur eru þó að víkja
fyrir járnsökkum af umhverfisástæð-
um.
„Mörgum finnst að vísu leiðinlegra
að vera með járn í sökkunum en þetta
er vistvænna en blýið og þegar fiskað
er á handfæri og notaðar járnsökkur
þá verða veiðarnar ekki öllu
umhverfisvænni," segir Birgir.
Rafbjörg flytur sjálft til landsins
þann búnað sem fyrirtækið selur og
fjöldi umboðsaðila er út um landið og
í gegnum þá þjónustar fyrirtækið smá-
bátasjómenn hringinn í kringum
landið. Nýjasta viðbótin við vörurlista
Rafbjargar eru sjógallar, hanskar og
vettlingar „þannig að sjómennirnir
þurfa ekkert nema bátinn og leyfið
áður en þeir koma til mín," segir Birgir.
40 ÆGiIR