Ægir - 01.06.1999, Blaðsíða 11
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Fiskiðj usamlagið
lækkar skuldir
TJiskiðjusamlag Húsavíkur hefur
-T selt rœkjufrystitogaratm
Húsvíking ÞH til útgerðarfyrirtœkis í
Noregi og þar með verður ekkert skip
eftir í eigu fyrirtœkisins. Samkvœmt
upplýsingum Ægis er þó meðal kosta
fyrirtœkisins að kaupa minni skip til
að afla Fiskiðjunni hráefnis en
ákvörðun þar um hefur ekki verið
tekin.
Ljóst er að kaup á Húsvíkingi ÞH,
sem fyrrum hét Pétur Jónsson RE, voru
stór biti fyrir Fiskiðjusamlagið, ekki
hvað síst þegar í kjölfarið kom sam-
dráttur í rækjuveiðum á heimamiðum.
FH hefur ekki einungis losað fé með
Húsvíkingur ÞH fer senn til Noregs.
sölunni á Húsvíkingi heldur seldi
félagið einnig á dögunum rækju-
verksmiðju á Kópaskeri og getur með
þessum aðgerðum lækkað skuldir sínar
um tæplega milljarð króna.
Fiskifélagið verður
með bás á Ice Fish
Fiskifélag Islands verður með bás
á Islensku sjávarútvegssýningunni í
Kópavogi, dagana 1.-4. september í
haust. Þar verður leitast við að
kynna starfsemi Fiskifélagsins,
einkum útgáfu Ægis og Sjó-
mannaalmanaksins.
Með ágústblaði Ægis, sem kemur
út í lok þess mánaðar, mun fylgja
aukaútgáfa með kynningu á flestum
þeirra fyrirtækja sem taka þátt í sýn-
ingunni.
Við óskum útgerð og áhöfn til hamingju
með nýja skipið. Skipið er allt málað
með HEMPELS skipamálningu frá
Slippfélaginu Málningarverksmiðju.
—Slippfélagið
Málningarverksmidja
Dugguvogi 4 ■ 104 Reykjavik • Sími: 588 8000 • Fax: 568 9255
Ncm ii