Ægir - 01.06.1999, Síða 16
Reykjavík!
Heildartekjur hafnarinnar nema
rúmlega 800 milljónum og þar aferu
um 20% teknanna afsjávarútvegi.
Reykjavíkurhöfn:
HlutfaMega verð-
mætari afla landað
en í öðrum höfnum
Hannes Valdimarsson, hafnarstjóri í
Reykjavík, segir það til marks um sjáv-
aútvegsbæinn Reykjavík að engin
höfn hafi jafn miklar tekjur af sjávar-
útvegi og Reykjavíkurhöfn.
„Þetta skýrist af því að hér hjá okk-
ur er að meðaltali landað verðmætari
afla en í öðrum höfnum. Hér eru
vissulega sterkar útgerðir og öflugir
frystitogarar gerðir út frá Reykjavík en
því til viðbótar leggja frystitogarar víðs
vegar af landinu gjarnan upp í Reykja-
vík þegar þeir eru á slóðunum hér fyrir
vestan og sunnan land. Til að mynda
er mikið magn af fiski að koma á land
hér í Reykjavík á vorin þegar togararn-
ir eru á karfaveiðum á Reykjanes-
hrygg," segir Hannes.
Markaðssetning
innanlands og erlendis
Hafnir keppa um hyili útgerða, hvort
heldur er kaup- eða fiskiskipa, enda
ljóst að hvert skip getur vegið þungt í
tekjum. Hannes segir að gefið sé út
kynningarefni á ensku og íslensku um
Reykjavíkurhöfn og höfnin tekur
einnig þátt í sýningum hér á landi og
erlendis til að markaðssetja sína þjón-
ustu. Þetta markaðsstarf snýr þó ekki
eingöngu að höfninni sjálfri heldur
einnig þeim þjónustufyrirtækjum sem
við höfnina
eru. Þess
vegna segir
Hannes að
höfnin hafi
samstarf við
þessi þjón-
ustufyrirtæki
um markaðs-
starfið, enda
hagur beggja
aðila.
„Hvað er-
lendar útgerð-
ir varðar þá
gengur svona upp og ofan að fá erlend
fiskiskip hingað inn og þar kemur
einnig til að skipum er ekki heimilt að
koma hingað til hafnar ef þau eru að
veiða úr stofnum sem ekki hefur verið
samið um. Þetta atriði hefur því áhrif
á okkar rekstur," segir Hannes.
Framkvæmdir eru miklar í Reykja-
víkurhöfn á yfirstandandi ári. Ný olíu-
bryggja verður tekin í notkun við
Örfirisey í haust, gerðar verða nýjar
lóðir fyrir starfsemi sem sótt er í að
koma niður á hafnarsvæðinu og
lengdur verður hafnarbakki við Sunda-
höfn til að mæta vaxandi vöruflutn-
ingum.
16 ÆGiIR