Ægir - 01.06.1999, Side 17
Eigum í harðri samkeppni
við nágrannahafnirnar
um skipaafgreiðslu
- segir Stefán Sigurjónsson hjá Löndun ehf.
Löndun ehf. viö Reykjavikurhöfn er al-
menn skipaþjónusta fyrir togara og
báta sem landa afla á Reykjavíkur-
svœöinu og segir Stefán Sigurjónsson
framkvœmdastjóri fyrirtœkisins, aö
jafnaöi mikil verkefni. Þegar best lœtur
starfa 45 manns hjá Löndun ehf. Und-
anfariö hefur veriö mikil vinnutörn,
enda öll skip i landi vegna sjómanna-
dagsins og frystitogarar i Reykjavikur-
höfn nœr undantekningalaust meö full-
fermi.
Stefán segir stærsta verksvið fyrir-
tækisins þjónustu við frystitogara, þ.e.
löndun og afgreiðslu umbúða og kosts
um borð. Fyrst og fremst fer afli frysti-
togara í gáma til útflutnings eða í
frystigeymslur en afli ísfisktogara fer
ýmist í gáma til útflutnings eða á fisk-
markað. Hvað varðar þjónustu við
flutningaskip þá annast Löndun ehf.
upp- og útskipun fyrir Samskip og sér
einnig um þjónustu við timbur- og
járnflutningaskip sem skipa upp í
Reykjavík.
Stefán segir augljóst að samkeppni
sé mikil í skipaþjónustu f höfnunum
við Faxaflóa, sér í lagi milli Reykjavík-
ur og Hafnarfjarðar. Lykilatriðið sé að
veita sem besta þjónustu og tryggja
hraða afgreiðslu skipa.
„Þó löndun úr fiskiskipum hafi
mikið breyst á undanförnum árum þá
hefur hún ekki orðið léttari með árun-
um og það er að mínu mati nauðsyn-
legt að einfalda löndunarverkþáttinn.
Þetta er enn of mikil handavinna og
Stefán Sigurjónsson, ffamkvœmdastjóri
Löndunar ehf.
viðkomið nema að takmörkuðu leyti
þá höfum við náð að hagræða vinnu
okkar mikið og skipuleggjum landanir
og útskipanir þannig að aldrei verður
uppihald frá því byrjað er að afgreiða
skip og þangað til afgreiðslunni er lok-
ið. Það skiptir miklu máli að veita
góða þjónustu í þessu eins og öðru þar
sem samkeppnin er mikil og með því
móti höfum við haldið okkar föstu
viðskiptavinum," segir Stefán.
Meðal þeirra útgerðarfyrirtækja sem
eru í föstum viðskiptum hjá Löndun
ehf. eru Ögurvík hf. í Reykjavík, Sam-
| herji hf. á Akureyri og Ljósavík í Þor-
i lákshöfn og síðan er fjöldi fyrirtækja
1 sem nýtir sér þjónustuna þegar skip
þeirra koma inn til löndunar í Reykja-
vík.
ekki gert ráð fyrir í hönnun t.d. togar-
anna að koma við tækjum til að gera
löndun léttari. í togurunum notum
við rafmagnslyftara í lestunum til að
koma brettunum nær lúgunum og
reyndar var reynt að þróa færibönd til
að flytja kassa úr lestunum og beint út
á bryggju en sá búnaður bilaði of mik-
ið og reyndist óhagkvæmur," segir
Stefán og bætir við að skipahönnuðir
mættu huga alvarlega að því að gera
togara þannig úr garði að hægt sé að
aka út um síðulúgur og út á flotbryggj-
ur eða í gegnum stefni skipanna.
„Það myndi auðvelda löndun, flýta
verulega fyrir afgreiðslu skipanna og
auðvelda alla vélvæðingu. En þrátt fyr-
ir að vélvæðingunni hafi ekki verið
Um 45 manns starfa að jafhaði hjá
Löndun ehf.
ÆGIR 17