Ægir

Volume

Ægir - 01.06.1999, Page 19

Ægir - 01.06.1999, Page 19
Kaupendur á Faxamarkaði gera sín daglegu innkaup. Yfir þrjátíu kaupendur koma að jafnaði á uppboð Faxamarkaðar á hverjum degi. Faxamarkaðurinn: Hátt fískverð allt yfírstandandi kvótaár „í heildina hefur oröiö mikil aukning hjá okkur i vetur, bœði magn- og verömœtaaukning,"segir Ólafur E. Ólafsson, framkvœmdastjóri Faxamark- aöar sem starfrœkir markaöi i Reykja- vik, á Akranesi og I Sandgeröi. Hið háa fiskverð vekur óneitanlega athygli og aðspurður um skýringar segir Ólafur þær margar. „Alveg frá því í haust hefur fengist mun betra verð fyrir frysta ýsu en áður var. Þetta þýðir auðvitað að vinnslur hafa sóst eftir ýsunni á fiskmörkuðun- um og verðið þar með hækkað. Svipað er að segja um þorskinn og margar aðrar tegundir. Framboðið hefur verið meira en eftirspurnin allt þetta ár og þar af leiðandi hefur ekki orðið sú verðlækkun sem oft hefur verið í byrjun mars," segir Ólafur. Lengi framan af var fiskmarkaði aðeins að finna í fáum höfnum suðvestanlands en með árunum hefur mörkuðunum fjölgað og sölukerfið þróast. Ólafur segir að skip fari gjarnan inn til löndunar þar sem stutt er frá miðum og nýti sér sölukerfi fiskmarkaðanna en Faxamarkaður er aðili að sölukerfi íslandsmarkaðar. „Samgöngur em orðnar það góðar að skipin geta allt eins komið inn í Ólafsvík, ísafjarðar eða Þorlákshafnar og selt í gegnum sölukerfi okkar og sent aflann til verkenda hér í höfuð- borginni. Við erum ekki aðeins að þjónusta seljendurna, þ.e. útgerðirnar, heldur erum við mikilvægur hlekkur fyrir verkunarfyrirtækin og tilvist okk- ar er ekki hvað síst mikilvæg fyrir þá. Hér í Reykjavík era mörg lítil verkun- arfyrirtæki sem era að vinna fisk fyrir markað innanlands og utan og mig grunar að það séu fleiri slík fyrirtæki til hér í höfuðborginni en almenning- ur gerir sér grein fyrir," segir Ólafur. Á hefðbundnum degi koma um 30- 40 kaupendur til Faxamarkaðar til að eiga sín viðskipti og flestir eru úr Reykjavík. „Þetta eru fyrst og fremst fiskverk- endur og síðan eru þetta fulltrúar fisk- búðanna, enda er það algerlega liðin tíð að fiskbúðirnar hafi bein viðskipti við báta. Þær nota sér eingöngu þjón- ustu fiskmarkaðanna, enda er hægt að velja þar úr fleiri tegundum og haga innkaupunum eftir því hvernig verð sveiflast frá einni viku til annarrar. Seljendurnir sem við erum að veita þjónustu koma margir hverjir héðan úr Reykjavík, ekki síst minni bátarnir, en einnig seljum fisk af Grandatogurum og fiskiskipum víðs vegar að af landinu," segir Ólafur. Ólafur E. Ólafsson, framkvœmdastjóri Faxamarkaðar. Æcm 19

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.