Ægir - 01.06.1999, Side 31
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEOI
Túristar í hvalaleit
Hvalaskoðun er nú orðinn einn vinsælasti
hluti íslenkrar ferðamennsku og fer sífellt
vaxandi. Áhuginn kviknaði fyrir fimm
árum, eða árið 1995, og þá fóru 2.200
manns í hvalaskoðunarferðir á landinu og
síðan hefur þessi fjöldi stóraukist á ári
hverju. Næsta ár á eftir, 1996, fóru 9.500
manns í ferðir af þessum toga, árið 1997
fór talan í 20.540 og síðastliðið ár fóru
30.330 manns í hvalaskoðunarferðir.
Beinar tekjur hvalaskoðunarfyrirtækja,
flugfélaga, hópferðabíla, veitingahúsa og
annarra sem að þessum ferðum komu á
síðasta ári, eru taldar hafa numið 456
milljónum króna og gert er ráð fyrir að
heildartekjur þjóðarbúsins af hvalaskoð-
unarferðamennsku hafi verið um það bil
7-800 milljónir.
Erlendir ferðamenn eru stór hluti gesta í
hvalaskoðunarferðum en áhugi
íslendinga fer einnig vaxandi. Hægt er að
komast í ferðir frá ýmsum stöðum á
landinu, svo sem Húsavík, Dalvík,
Snæfellsnesi, Hafnarfirði, Keflavík og
Vestmannaeyjum.
Norðursigling á Húsavík bætir við þriðja bátnum
í hvalaskoðunina:
r
„Ahuginn á hinni
villtu náttúru
er sívaxandi
í heiminum“
segir Hörður Sigurbjarnarson, framkvœmdastjóri
~\Jú ergengið ígarð fimmta suittar-
1 \ ið sem fyrirtœkið Norðursigling á
Húsavík býður upp á hvalaskoðunar-
ferðir fyrir ferðamenn og hefur ttýlega
bœtt við þriðja bátnum, Náttfara, til
þessa verkefnis. Þetta ergamall eikar-
bátur sem hefur verið gerður upp og er
hann talsvert stœrri en hinir tveir,
Knörrinn og Haukur, sem fyrir voru.
Hörður Sigurbjarnarson er frattt-
kvœmdastjóri Norðursiglingar og segir
hattn hvalaskoðunarferðirnar mjög
vinsœlar og vaxandi áltugi hjá fólki
að skoða villta náttúru og búsvœði
dýra víðsvegar í heiminum og það
skipti miklu máli í markaðssetningu
á landinu.
„Við erum svo heppin að geta státað
af villtri náttúru og hér á Skjálfandan-
um eru aðstæður mjög góðar og með
þeim betri í heiminum til hvalaskoð-
unar. Við þurfum ekki annað en fara
Hörður Sigurbjantarson, framkvœmda-
stjóri Norðursiglingar.
rétt út úr höfninni til að komast í fjöl-
skrúðugt fuglalíf meðfram auðri
ströndinni og höfum í leiðinni góða
fjallasýn. Svo líður yfirleitt ekki nema
hálftími þar til fer að sjást í hvali og
það gerist í 98-99 prósent tilvika," segir
Hörður og bætir við að í skoðunarferð-
unum sjáist margar hvalategundir, s.s.
NGHR 31
Hafþór Hreiðarsson