Ægir - 01.06.1999, Side 32
Feröamenn um borð í Náttfara og brátt er lagt úr höfn í leit að hvölum. í
hvalaskoðuninni skiptir miklu að geta sýnt fram á að hvalir sjáist í miklum meirihluta
ferðanna.
höfrungar, hnísur, steypireyðar og
hrefnur.
Hann segir aðstandendur Norður-
siglingar ekki hafa gert sér grein fyrir
árangri þessara ferða þegar þær byrj-
uðu fyrir fimm árum en þeir hafi þó
vitað að siglingin sjálf hefði mikil
áhrif á fólk. Því hafi verið valdir litlir
hjóðlátir bátar svo gestirnir gætu not-
ið íslenskrar náttúru og umhverfisins
að fullu. Þarna komi menning þjóðar-
innar í gegnum aldirnar skýrt fram og
fólki sé gerð grein fyrir því að þarna er
32 ÆGIR ------------------------
um að ræða fiskiskipin sem gerðu ís-
lendinga að þeirri nútímaþjóð sem við
erum í dag.
Hvalaskoðunin góð viðbót
Sett hefur verið upp hvalasafn á Húsa-
vík sem er samstarfsverkefni aðila í
ferðaþjónustu og bindur Hörður mikl-
ar vonir við safnið og segir það styrkja
hvalaskoðunina. Þarna er um að ræða
fræðslusafn með alþjóðlegum tengsl-
um, sem er mikilsvert fyrir hvalaskoð-
unina því hún er flokkuð í heiminum
Hvalasafhið á Húsavík hefur nú verið
opnað og styrkir það mikið þau
hvalaskoððunarfyrirtœki sem fyrir eru á
staðnum, þ.e. Norðursiglingu og Sjóferðir
Amars.
undir fræðsluferðamennsku.
„Við erum með náttúmfræðslu í
hverri ferð og skírskotun til menning-
ar með því að sýna bátana og kynna
þá. Við varðveitum í leiðinni gamla
báta og verkþekkingu á viðhaldi tré-
báta sem er nauðsynlegur þáttur í
ferðamennsku. Við megum ekki
gleyma því að þessi verkþekking okkar
í landinu er á heimsmælikvarða og má
ekki glatast. íslensku eikarskipin eru
með því allra vandaðasta sem þekkist í
heiminum hvað gæði varðar og til-
hugsunin um að þau glatist er óbæri-
leg."
Eikarbátunum bjargað
Náttfari heitir nýi eikarbáturinn
sem tekinn var í notkun hjá Norður-
siglingu í vor og rúmar hann yfir 70
farþega meðan hinir tveir taka um 40
farþega hvor. í lest Náttfara hefur ver-
ið innréttaður vistlegur veitingasalur
og er báturinn allur hinn glæsilegasti.
Hörður segir nýja bátinn skapa meira
rekstraröryggi og tilkoma hans geti
skipt viðstkiptavini Norðursiglingar
miklu máli, því hægt sé að sigla hon-
um í verra veðri en hinum tveimur og
sé því minni hætta á að aflýsa þurfi
ferðum vegna veðurs. Hinir bátarnir
verði þó í fullri notkun daglega enda á
áætlun að fara, auk hvalaskoðunar, í
fjölbreyttari ferðir í sumar, svo sem í
fuglaskoðun og í sjóstangveiði.
lafþór Hreiðarsson