Ægir - 01.06.1999, Page 36
Mikið af kolmunna
'ATorska hafrannsóknastofnuniti
1 \ hefur staðfest það álit sjómanna
að kolmunnastofninn sé mjög sterk-
ur. Slíkt magti kolmunna hefur ekki
fundist síðan fyrsta rannsóknarferð-
in var farin fyrir 27 árum.
í norska blaðinu Fiskaren kemur
fram að rannsóknaskipið „Johan
Hjort" fór um svæðin við Rockall, Fær-
eyjar, Shetland og Norðursjóinn úti
fyrir Bergen og mældist kolmunna-
stofninn yfir 8 milljónir tonna, sem
þó verður ekki opinberlega staðfest
fyrr en að loknu nánara mati. Mest
fannst af kolmunna vestan Hebrides-
eyja, einkum við eyjaklasann St. Kilda.
Rannsóknirnar benda til þess að
meira en helmingur hrygningarstofns-
ins er ungfiskur, klakinn 1996. Mjög
lítið var af eldri fiski en 4 ára þannig
að í hrygningarstofninum eru aðeins
fáir árgangar. Það gæti valdið því að
stofninn snarminnkaði þegar 1996 ár-
gangurinn hverfur.
í fyrra veiddu Norður-Atlantshafs-
þjóðirnar alls um eina milljón tonna.
Fiskifræðingar hafa ráðlagt að árlega
skuli ekki veitt meira en 650 þúsund
tonn.
Það sem af er þessu ári hafa Norð-
menn veitt tæp 350 þúsund tonn, sem
er um 15 þúsund tonnum meira en á
sama tíma í fyrra.
Verð á kolmunna til bræðslu er nú
WlvV
/MÍ>\
REVTINGUR
um 6,40 krónur fyrir kílóið en var 8,46
kr/kg í fyrra. Verðlækkunin virðist því
ekki hafa minnkað áhuga á veiðunum,
sem nú hafa skilað um 2,4 milljörðum
íslenskra króna á móti 2,9 milljörðum
í fyrra.
DET NORSKE VERITAS
Hafnarhvoli, Tryggvagötu, 101 Reykjavík
Sími: 551 5150 • FAX 561 5150
OSKUM
ÚTGERÐ OG
ÁHÖFN TIL
HAMINGJU
MEÐ SKIPIÐ
u
36 MGIR