Ægir - 01.06.1999, Síða 40
Dömurnar vom ekki feimnar við ýsumar
og stóöu sig vel í aðgerðinni.
I sjóferð með skólaskipinu Dröfn RE 35:
r
Ahugasamir nemendur
læra handtökin á sjónum
kólaskipið Dröfn RE-35 er lítið
hafrannsóknarskip sem notað er
sem skólaskip. Sjávarútvegsráðuneyt-
ið, Hafrannsóknarstofnun og
frœðsludeild Fiskifélags íslands,
standa fyrir tveggja ára tilraunaverk-
efni fyrir 9. og 10. bekki grunnskól-
anna í tilefni af „Ári hafsins"
Helstu starfssvið fræðsludeildar eru
almenn skipulagning sjóvinnunáms í
grunnskólum landsins, leiðbeiningar
og ráðgjöf um framkvæmd kennsl-
unnar, gerð kennsluáætlunar og öflun
og val námsgagna í samvinnu við
40 Mm -----------------------------
kennara. Fræðsludeildin hefur séð um
þetta síðan 1973.
Þriðjudaginn 16. mars var ákveðið
hjá Fiskifélagi íslands að undirrituð,
Hildur Guðbrandsdóttir og Þorleifur K.
Valdimarsson, starfsmenn deildarinn-
ar, sem höfum með höndum skipu-
lagninguna á ferðunum fyrir grunn-
skólana með Dröfninni, færum með í
eina ferð.
Eftir hádegi þann sama dag var lagt
í hann og mætt um borð laust fyrir
kl.13.00.
Á móti okkur tók skipstjórinn,
Gunnar Jónsson, og áhöfn hans. Veðr-
ið var eins og best verður á kosið.
Næstum logn en örlítill austan and-
vari, sól af og til og rennisléttur sjór.
Það hafði verið spáð vondu veðri en
sem betur fer þá stóðst sú spá ekki.
í þessa ferð var bókaður Engjaskóli
úr Grafarvoginum með krakka úr 9. og
10. bekk, ásamt kennara, alls 10
manns fyrir utan okkur Þorleif og einn
strák úr Hamraskóla sem kom með
okkur.
Landfestar voru leystar og siglt út
úr höfninni og á útstíminu var kennt
Steindór Guðjónsson