Ægir - 01.06.1999, Side 42
Flipa-stýri
Beckers-stýri
Fyrir u.þ.b. 40 árum lét skipstjórinn
Willi Becker smíða stýrisblað sem síð-
an hefur verið kennt við hann. Þetta
er að sjálfsögðu Beckers stýrisblaðið.
Forsögu þess má rekja til þess tíma
þegar Becker var skipstjóri á eigin
fljótabáti á ánni Rín. Bátur Beckers var
langur og klunnalegur, lét illa að
stjórn og sérstaklega leiðinlegur í
stjórntökum. Becker leitaði að lausn á
þessu vandamáli og hafði trú á að
„stýrisflapsar" sem notaðir eru á flug-
vélavængjum mætti einnig nota á
skipsstýri. Hugmyndinni var hrint í
framkvæmd og stýrisblað með flipa
(„flaps") var smíðað. Stýrið var prófað
á bát Beckers og reyndist mjög vel og
stýrihæfni bátsins batnaði til muna.
Stýrisblað Beckers var fyrsta hag-
nýta flipastýri fyrir báta og skip. Stýrið
hefur marga góða kosti. Þannig þarf
ekki sérstakt hreyfiafl fyrir flipann og
hægt er að nota sömu stýrisvél og
áður. Viðhald er lítið og hreyfihlutir
eru aðgengilegir, (sjá mynd 1).
Framleiðsla Beckers-stýra hófst upp
úr 1960. Það er nánast óbreytt frá upp-
hafshönnun, en nokkrar stórar og
smáar endurbætur hafa verið gerðar á
því. Nú er stýrisblaðið nánast við-
haldslaust og háþróað stýri.
Stýrisblaðið er straumlínulagað
spaðastýri með litla vatnsstraumsmót-
stöðu. Flipinn er þvingaður af stýris-
blaðinu með sérstökum vatnssmurð-
um stýrilið. Smíðakostnaður Becker
stýrisblaðsins er ívið hærri en venju-
legs stýrisblaðs frá skipasmíðastöð.
Það getur verið áhugavert að vita að
skip búið tveimur skrúfum og tveimur
Beckers stýrisblöðum getur siglt út á
hlið án bógskrúfu. Allt að 1,5 hnúta
þverskips hraði hefur mælst á skipi
sem eingöngu er með skrúfu og Becker
stýrisblaði.
Eiginleikar Beckers stýrisblaðsins
felast í því hvernig stjórnun flipans er
útfærð. Við hverja eina gráðu sem
stýrisblaðið er sveigt út í borð færist
flipinn um þrjár gráður sem er nægj-
anlegt til að stýra skipinu án þess að
stýrisblaðið vaidi mótstöðu eða
minnki hraða skipsins. Skip á siglingu
búið flipastýri hefur snúningsþvermál
sem er dæmigert 1 til 1,5 skipslengd
þegar stýrið er að fullu út í borð. Við
10 gráður út í borð er snúningsþver-
málið 2 til 3 skipslengdir.
Nokkur þúsund Beckerstýri hafa
verið framleidd fyrir allar stærðir og
gerðir skipa: Fiskiskip smá og stór,
flutningaskip, eftirlits- og varðskip,
farþegaskip og ferjur, ísbrjóta og olíu-
flutningaskip allt að 140.000 brúttó-
rúmlestir.
Barkemeyer-stýri
Barkemeyer stýrisblaðið, einnig nefnt
Barke-stýri, er skylt Becker stýrisblað-
inu. Stýrisblaðið er háþróað straum-
línulagað flipastýrisblað með stýrilið í
lokuðu húsi sem er fyllt með smur-
Guðbergur
Rúnarsson
verkfrœðmgur
hjá Fiskifélagi fslands
skrifar
Fiskifélag íslands
feiti. Slit á stýrislið er í lágmarki. Sand-
ur og fljótandi aðskotahlutir, t.d. ís,
komast ekki inn í liðhúsið.
Liðhúsið er sérstaklega útfært til að
taka á móti höggum og í stýrinu er
innbyggð álagsvörn sem á að koma í
veg fyrir að það festist. Færslu
stýriflipans er hægt að breyta fyrir
hinar mismunandi skipsgerðir. Mynd
2.
Heimild:
Skipsrevyen 1/90 og ýmsar upplýsingar
af Veraldarvefnum.
Mynd 2. Barkemayer-stýri.
42 ÆGIR