Ægir - 01.06.1999, Blaðsíða 46
Svanborg SH 404 afhent eigendum sínum:
Annar raðsmíðabátur
r
Oseyjar á fáum vikum
Nýtt
fiskiskip
Skipasmíðastöðin Ósey hf. í Hafiiarfirði afhenti á dögunum Svanborgu SH
404 og er þetta annað raðsmíðaskipið sem fyrirtœkið afhendir á fáeinum
vikum. Hið fyrra var Esjar SH, sem einttig fór á Snœfellsnesið. Eigandi
Svattborgar er Sœbjörn Ásgeirsson, útgerðarmaður í Ólafsvík.Verð bátsins, að
meðtöldum öllum búnaði, var 46 milljónir króna. Svanborgin er útbúin til
dragnótaveiða en hœgt er á auðveldan hátt að útbúa bátinn til línu- og
netaveiða.
Almenn lýsing
Svanborg er 15,6 metrar að lengd, 5
metrar að breidd og mælist 29,9
brúttólestir. í bátnum er 474 hestafla
Caterpillar aðalvél sem keypt var frá
Heklu hf. Þá eru ljósavélarnar tvær af
gerðinni Perkins og erul8 kW. Vélarn-
ar koma frá Marafli en fyrirtækið seldi
einnig skrúfubúnaðinn í bátinn sem er
Damen, þriggja blaða skrúfa í skrúfu-
hring. Þvermál skrúfu er 1300 mm.
Ósey smíðaði stýrið sjálft en stýrisvél
er frá Stýrisvélaþjónustu Garðars Sig-
urðssonar.
46 AGIR