Ægir - 01.06.1999, Síða 49
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Guðbergur
Rúnarsson
verkfrœðingur
hjá Fiskifélagi ísiands
skrifar
Fiskifélag íslands
Almenn lýsing
Örn KE 14 er smíðaður úr stáli sam-
kvæmt reglum og undir eftirliti Det
Norske Veritas í flokki * 1 A1 Fishing
Vessel. Hann er teiknaður hjá Skipa-
tækni hf. og hefur bandabil 0,5 m.
Skipið er með eitt þilfar stafna á
milli, perustefni, hvalbak og bakkaþil-
far, gafllaga skut og brú fyrir framan
mitt skip.
Undir aðalþilfari er skipinu skipt
með fjórum vatnsþéttum þverskipsþil-
um í eftirtalin rými, talin framan frá:
Stafnhylki fyrir sjó, íbúðaklefa með
ferskvatnsgeymum og þurrrými í
botni, fiskilest með eldsneytistönkum
undir gólfi, vélarúm með eldsneytis-
geymum á afturþili og vökvakerfisolíu
í botni. Aftast er stýrisvélin.
Á þilfari eru tvær fiskilúgur, mann-
op fyrir lest, lestarlúga, þilfarskrani,
neyðarlúga upp úr vélarúmi og þar aft-
an við eru togspilin. Aftast er skutgálgi
með færanlegri netatromlu. Sambyggt
skutgálga er skorsteinshús.
Á bakkaþilfari framan við brú er
akkerisspil, tvö akkeri í festingu og
neyðarlúga fyrir íbúðir. Fyrir aftan brú
em tveir björgunarbátar, einn í hvoru
borði.
íbúðir
Vistarverur í skipinu eru allar stór-
glæsilegar. Klefar eru fyrir 8 manns í
fjórum tveggja manna klefum. Um
borð er góð hreinlætisaðstaða með
sturtu og tveimur salernum.
Á aðalþilfari er fremst geymsla fyrir
landfestingar, þá tveir tveggja manna
klefar. Aftan við stjórnborðsklefa er
rúmgóður borðsalur og eldhús. Stakka-
geymslan er bakborðsmegin og inn af
henni er salerni. Milli stakkageymslu
og íbúðaklefa er rúmgóð snyrtiaðstaða
með salerni og sturtu. Undir þilfari eru
tveir tveggja manna klefar.
Brúin er rúmgóð, með útgöngum út
á brúarþilfar stjórnborðs- og bakborðs-
megin. Brúin er vel búin tækjum í U-
laga púlti stjórnborðsmegin í brúnni.
Þar er m.a leðurklæddur skipstjórastóll
í braut, tölvubúnaður ásamt hefð-
bundnum stjórn-, fiskileitar, og sigl-
ingatækjum. Bakborðsmegin í brúnni
er stórt kortaborð og mikið gólfrými.
Þar er fyrirhugað er að setja upp þrek-
hjól fyrir áhöfnina. Aftast í brú er
stjórnpúlt fyrir togvindur ásamt stjórn-
tækjum aðalvélar. Á brúarþaki er rat-
sjár- og ljósamastur.
íbúðir og brú eru klæddar plast- og
viðarklæðningum og hitaðar upp með
rafmagnsofnum.
Vélrúm og búnaður
Hin mikla breidd Arnar KE er þess
valdandi að vélarúm skipsins er stórt.
Rúmt er um aðalvél, hjálparvélar og
annan búnað í vélarúminu. í
vélarúminu er góð vinnuaðstaða með
vinnuborði og PC-tölvu í púlti fyrir
viðhaldskerfi skipsins.
Aðalvélin er frá Cummins af gerð-
Helstu mál og stærðir
Aðalmál:
Mesta lengd (Loa) (m).............................................21,95
Lengd milli lóðlína (m)...........................................20,24
Breidd (mótuð) (m).................................................8,00
Dýpt að aðalþilfari (m)............................................3,80
Rými og stærðir:
Brennsluolíugeymar (m3)...........................................27,15
Ferskvatnsgeymar (m3).............................................17,33
Smurolía og glussi (m3)............................................4,76
Stafnhylki sjór (m3)................................................9,2
Lestarrými (m3).....................................................125
Eiginþyngd (tonn)................................................150,64
Særými við 3,32 m djúpristu undir kjöl, miðskips (m3).............326,0
Mæling:
Brúttórúmlestir..................................................159,00
Brúttótonnatala..................................................135,02
Nettótonn.........................................................48,00
Rúmtala...........................................................615,3
Aðrar upplýsingar:
Bryggjuspyrna - tonn við 499 hö.....................................7,8
Aflvísir við 499 hö.................................................848
Ganghraði .............................................allt að 11 hnútum
Skipaskrárnúmer....................................................2313
Ncm 49