Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1999, Blaðsíða 8

Ægir - 01.08.1999, Blaðsíða 8
íslendingar duglegir að nýta daga annarra þjóða í veiðum á Flœmska hattinum: Kann að koma niður á íslenska kvótanum jarni Sveinsson, skipstjóri á rœkju toga ranum Pétri Jónssyni RE, segir að rœkjuveiðin á Flœtnska hattinum hafi verið tnjög jöfn oggóð að undanfórnu og líkast til ttokkuð betri en í fyrra. Hann segir mikitin fjölda af skipum á svceðinu setn telja verði ísletisk pó þau sigli undir flögg- utn annarra þjóða og veiði á dögum þeirra, sér í lagi Eystrasaltsland- anna. „Það er alveg ljóst að þegar íslend- ingar koma með þessum hætti inn og veiða með íslenska hugarfarinu, þ.e. að því meira sem aflist þeim mun hærri verði tekjurnar, þá verður aflinn á þessum dögum mun meiri en ella hefði orðið hjá þjóðunum sem eiga dagana. Ég veit að þau vinnubrögð ís- lendinga að fara inn á daga annarra þjóða með þessum hætti fara rnjög í taugarnar á Færeyringum, Kanada- mönnum og Norðmönnum og mér kæmi ekki á óvart þó umræða yrði um þessi mál á NAFO fundinum í haust," segir Bjarni. Hann segir að svo geti farið að aukin veiði á dögum Eystrasaltslandanna, fyrst og fremst fyrir tilstilli íslenskra útgerða, geti komi niður á íslendingum. Pétur Jónsson RE við veiðar á Flcemska hattinum fyrr í sumar. „Þetta kann að valda skerðingu á kvóta íslendinga á svæðinu og þar með hitta okkar sjálfa fyrir þannig að það er spurning hversu mikinn hag við höfum af því að fara í gegnum daga annarra inn á svæðið," segir Bjarni. Hann segir flest íslensku skipanna á svæðinu hafa lokið við sinn kvóta en útlit er fyrir að Pétur Jónsson RE verði á svæðinu fram undir áramót, enda með mikinn kvóta. Bjarni segir afla- verðmætið í túr hafa verið á bilinu 60- 90 milljónir króna. TÆKNIBÚNAÐUR HRAÐASTÝRINGAR AFLROFAR m»ip Nánari upptýsingar f síma 5 200 800 og i vefnum: www.ronning.is & www.abb.com .//* JOHAN RÖNNING 8 M3M borgeir Baldursson

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.